Innlent

Vill tryggja launahækkanir sem allra fyrst

Sigurður Orri Kristjánsson skrifar
Vilhjálmur Birgisson
Vísir/Egill

Aðilar vinnumarkaðarins halda áfram að funda í húsakynnum ríkissáttasemjara í dag en gert var hlé á fundarhöldum í gær svo viðsemjendur gætu farið yfir málin með sínu baklandi. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins segir mikilvægt að ná saman eins fljótt og mögulegt er. 

Vilhjálmur segist bjartsýnn fyrir viðræður dagsins:

„Það er hugur í mér um að reyna að ná að klára kjarasamninginn með það að markmiði að koma launahækkunum út til minna félagsmanna eins fljótt og verða má enda hefur lágtekjufólk á íslenskum vinnumarkaði þurft að þola gríðarlegar hækkanir á liðnum misserum. Ég tel engan tíma mega missa í því að koma launahækkunum út til fólksins. Það er megin markmiðið. Það er að ganga í garð jólahátíð og ég veit að það er mikið af lágtekjufólki sem á erfitt með að ná endum saman. Ég tek þá ábyrgð gríðarlega alvarlega að okkur takist að koma þessum launahækkunum út til fólksins. Hvort það takist, það verður tíminn að leiða í ljós.“

Vilhjálmur segir eftir sem áður að hans vilji sé til þess að semja um krónutöluhækkanir í þessum viðræðum. Krónutöluhækkanir gagnist lágtekufólki best.

„Já, við erum að semja um krónutöluhækkanir enda hef ég sagt það í ræðu og riti í gegnum árin að prósentuhækkanir gagnvart lágtekjufólki eru aflgjafi misskiptingar og óréttlætis.“

En skynjar Vilhjálmur samningsvilja hjá Samtökum atvinnulífsins?

„Ég held að það sé allavega vilji til þess að reyna eins og kostur er að ná þessu saman. Það þarf alltaf tvo til þegar tveir deila það liggur bara fyrir ef það á að nást lausn. Svo ég biðla bara til samtaka atvinnulífsins að leggja sitt af mörkum til þess að við náum saman.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×