Mikla snjókomu gerði á höfuðborgarsvæðinu á aðfararnótt laugardags og færð hefur verið erfið um helgina. Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs og starfandi borgarstjóri, er hugsi yfir vetrarþjónustu borgarinnar þrátt fyrir að ágætlega hafi gengið að ryðja, að hans sögn.
Árangur af þjónustunni væri ekki meiri en aflið sem borgin setti í hana. Eins og sakir standa sé borgin með samninga við verktaka um níu tæki til að ryðja stofnvegi og tengibrautir inn í hverfi og tólf minni tæki til að ryðja göngu- og hjólastíga.
„Mér finnst tímabært að hugsa það hvort að borgin eigi ekki að eiga sjálf snjóruðningstæki,“ sagði Einar í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Viðurkenndi hann þó að hann þekkti ekki vel sögu snjóruðnings í borginni. Hann vildi engu að síður að farið yrði í þá vinnu að skoða hvaða tæki borgin gæti átt, hvað það kostaði og hvort slík tæki gætu gagnast á öðrum tímum ársins.
Erfitt væri að spá fyrir um þörfina hverju sinni. Þannig var vetrarþjónusta tvöfalt dýrari fyrir borgina í snjóþyngslum síðasta vetur en gert var ráð fyrir en veturinn á undan fengu verktakar greitt án þess að hreyfa tæki sín þar sem varla féll eitt snjókorn.
Hlusta má á viðtalið við Einar í heild sinni í spilara að neðan.
Töluverð upplýsingaóreiða í kringum snjómokstur
Sagðist Einar skilja óþreyju fólks eftir að götur þess væru ruddar. Unnið sé eftir ákveðnum forgangi sem megi nálgast í borgarvefsjá. Fyrst sé farið í stofnbrautir og tengibrautir til þess að innviðir geti starfað og borgarbúir hafi kost á því að taka strætó eða nota aðrar samgöngur.
Í dag sé kapp lagt á að ryðja húsagötur áður en snjórinn verði að klaka eða bætir enn í fannfergið.
Að því sögðu þyrftu borgarbúar að hugsa betur um hvernig þeir tækjust á við ástand sem þetta sem samfélag. Fólk vaði af stað á illa búnum bílum. Strandaðir bílar teppi snjóruðningstæki um alla borg og komi í veg fyrir að hægt sé að ryðja götur sums staðar.
„Við þurfum að muna að við búum á Íslandi. Við verðum að geta sýnt smá ábyrgð, ekki fara af stað. Það er bara skítaveður og vond færð. Þá verður maður bara að bíða aðeins,“ sagði Einar sem benti á að sumar borgir í heiminum lokist alveg við aðstæður sem þessar.
Gaf hann lítið fyrir umkvartanir á þá leið að nágrannasveitarfélög hafi verið búin að ryðja húsagötur strax um helgina. Upplýsingaóreiða í kringum snjómokstur væri töluverð. Þannig vissi hann að ekkert hefði til dæmis verið skafið í efri byggðum Kópavogs í gær.