Skoðun

Ó­breytt staða í borgar­stjórn

Kolbrún Baldursdóttir skrifar

Nýtt kjörtímabil hófst á árinu og stimplaði Flokkur fólksins sig aftur inn í borgarstjórn. Vonir okkar í Flokki fólksins stóðu til að fá tækifæri til að komast í meirihluta borgarstjórnar til þess að geta tekið þátt í ákvörðunum sem leiða mættu til bættra lífskjara hinna verst settu og þeirra sem standa höllum fæti. Það varð hins vegar ekki hlutskiptið að þessu sinni í það minnsta.

Fáum óraði fyrir hversu slæm staða borgarinnar er í kjölfar stjórnarsetu Samfylkingar, Pírata, Viðreisnar og VG. Allt of stór hópur barna, öryrkja og eldra fólks á um sárt að binda og líður ekki vel. Of margar fjölskyldur og einstaklingar geta ekki séð sér farborða og hafa áhyggjur af grunnþörfum sem eru fæði, klæði og húsnæði. Vissulega er ekki allt svart.Ýmislegt gengur vel í Reykjavík og margir hafa það gott. Börnum upp til hópa líður vel í sínum aðstæðum og mörgum fjölskyldum og eldra fólki finnst gott að búa í Reykjavík.

Óveðurský hafa hrannast upp

Þrátt fyrir að margir hafi það gott í Reykjavík hafa óveðurský hrannast upp undanfarin ár sem rekja má til slakrar stjórnunar borgarinnar. Fátækt hefur aukist og sýna rannsóknir að vanlíðan barna, öryrkja og ákveðins hóps eldri borgara vex. Fjárhagur Reykjavíkurborgar hefur tekið lóðrétta stefnu niður á við. Lengi hefur verið ljóst hvert stefndi og sýndu vísbendingar það áður en faraldurinn skall á. Flokkur fólksins hefur bent á óábyrga fjármálastjórnun Reykjavíkurborgar frá árinu 2018. Ákveðin svið t.d. þjón­ustu- og nýsköp­un­ar­svið í sinni stafrænu vegferð hafa nán­ast leikið sér með útsvarsfé borg­ar­búa þótt stafrænar lausnir séu sannarlega framtíðin. Einnig má nefna mikla þenslu á skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara. Það hlaut að koma að skulda­dög­um.

Fátækt er staðreynd

Ógn fátæktarinnar leggst mismunandi á fjölskyldur en verst á börnin í þeim fjölskyldum sem bágast standa. Iðulega eru það einstæðir foreldrar, börn foreldra sem eru á örorkubótum, börn með fötlun, börn innflytjenda og börn sem tilheyra fjölskyldum með flóknar og umfangsmiklar þjónustuþarfir. Talið er að einstæðir foreldrar, öryrkjar, atvinnulausir og annað lágtekjufólk þar sem er einungis ein fyrirvinna búi við fátækt eða hættu á að falla í fátæktargildruna.Sýnt hefur verið fram á með rannsóknum að ójöfnuður hefur aukist og þá einnig innan menntakerfisins. Umræða um húsnæðisskort í Reykjavík hefur verið hávær allt árið. Þeir sem koma verst út eru einstæðir foreldrar og öryrkjar sem eru á leigumarkaði. Ekki bólar á neinum úrræðum til að styðja sérstaklega við þessa hópa.

Flokkur fólksins vill að gripið verði til sértækra og markvissra aðgerða í þágu þeirra verst settu. Horfa þarf sérstaklega til barnafjölskyldna þar sem áhrifin eru neikvæðust á börn. Efla þarf félagslegan stuðning við börn og unglinga sem eru jaðarsett og félagslega útskúfuð. Til þess þarf skýra stefnu í samræmi við ákvæði Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.Flokkur fólksins lagði til að farið verði með kerfisbundnum hætti í að vinna að innleiðingu Barnasáttmálans. Tillögunni var vísað til borgarstjórnar og er þar enn óafgreidd.

Flokkur fólksins er óþreytandi í umræðunni um biðlista

Áhersla þessa og síðasta borgarstjórnarmeirihluta snýst um aðra hluti en grunnþarfir fólks. Biðlistar barna eftir þjónustu fagfólks, einna helst sálfræðinga og talmeinafræðinga, hefur farið frá 400 börnum árið 2018 í 2048 börn í lok árs 2022. Ástandið hefur tekið toll af andlegri heilsu foreldra og barna. Tilkynningar um vanrækslu, ofbeldi og áhættuhegðun hafa einnig aukist. Ein af afleiðingum þess ástands sem ríkir nú í Reykjavíkurborg er vopnaburður eggvopna og barefla ungmenna. Í borgarstjórn á haustdögum lagði flokkurinn fram tillögu um að stýrihópur yrði settur á laggirnar sem myndi kortleggja aukinn vopnaburð eggvopna meðal ungmenna í Reykjavík. Tillögunni var vísað til ofbeldisvarnaráðs en hefur ekki fengið frekari skoðun þar. Á næsta borgarstjórnarfundi mun oddviti Flokks fólksins óska eftir umræðu um þessi mál og þá staðreynd að færst hefur í aukana að ungt fólk taki myndskeið af ofbeldi sem það er sjálft beint eða óbeint þátttakandi í eða verður vitni að og setji á samfélagsmiðla. Myndskeið af þessu tagi fara sem eldur í sinu og virðist vaxandi hópur barna sýna þeim áhuga og dreifa þeim áfram um netmiðlana. Þetta er mikið áhyggjuefni. Það er því tímabært að ráðamenn í samstarfi við foreldra og skólasamfélagið rannsaki orsakir að baki því að ungt fólk aðhyllist í vaxandi mæli ofbeldi, ofbeldis- og níðingsverk og telji sig fá vinsældir út á að ýmist beita því eða dreifa því.

Breyttur meirihluti en óbreytt staða

Nú er hálft ár liðið með örlítið breyttum meirihluta og reyna margir án efa að sjá fyrir sér hvernig þetta kjörtímabil verður. Mun Framsóknarflokkurinn marka spor í borgarstjórn eða verða áherslur að mestu þær sömu? Ef marka má þá mánuði sem eru liðnir er hér um afskaplega svipaðan meirihluta að ræða og þann fyrri. Svo virðist sem nýir borgarfulltrúar Framsóknar séu settir í fremstu víglínu við að svara fyrir eitt og annað sem fyrri meirihluti er ábyrgur fyrir. Flokkur fólksins er óþreytandi við að minna á að í þessu ástandi verðum við að huga að fólkinu í borginni. Annað getur beðið þar til betur árar.

Kolbrún Baldursdóttir, oddviti Flokks fólksins í borgarstjórn Reykjavíkur




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×