Neytendastofa hefur sektað tólf veitingastaði fyrir ófullnægjandi verðmerkingar. Þetta kemur fram á vef Neytendastofu.
Þar segir að í kjölfar ábendinga um að magnstærðir drykkja vantaði á matseðla margra veitingastaða í mathöllum hafi fulltrúar Neytendastofu farið í verðmerkingareftirlit í mathallir. Athugaðar voru almennar verðmerkingar og hvort magnstærðir drykkja kæmu fram.
„Slíkar upplýsingar eru mikilvægar fyrir neytendur til að meta verð drykkja þar sem þeir geta verið í mjög ólíkum magnstærðum,“ segir á vef Neytendastofu.

Athugaðar voru verðmerkingar hjá 54 veitingastöðum og voru gerðar athugasemdir við 37 staði.
„Allir veitingastaðirnir höfðu matvöru verðmerkta en níu höfðu engar verðmerkingar á drykkjum. Á 28 stöðum voru verðmerkingar til staðar en skorti magnupplýsingar drykkja. Með bréfum Neytendastofu var tilmælum beint til veitingastaðanna að koma verðmerkingum í rétt horf.“
Neytendastofa hefur nú lagt stjórnvaldssekt á tólf fyrirtæki vegna fimmtán veitingastaða sem bættu ekki verðmerkingar innan tilskilins frests.
Veitingastaðirnir sem ekki bættu ráð sitt eru Natalía og Næra í Veru mathöll, Kore í Granda mathöll, Kore og Tokoyo Sushi í Kringlu mathöll, Wokon, Beef and buns og Tandoori Palace í Höfða mathöll, Hipstur, Yuzu og Pronto pasta í Borg 29, Aku, Fuego, Band Vín og Grill og Kualua í Hafnartorgi mathöll og Fuego á Hlemmi.
Rekstraraðilar staðanna hafa þrjá mánuði til að greiða sektina.