Innlent

Hæg um­ferð úr Mos­fells­bæ til Reykja­víkur vegna farms á veginum

Atli Ísleifsson skrifar
Lögreglubíll hefur verið sendur á staðinn.
Lögreglubíll hefur verið sendur á staðinn. Vísir/Vilhelm

Löng bílaröð hefur myndast á Vesturlandsvegi, úr Mosfellsbæ og til Reykjavíkur, og gengur umferð mjög hægt eftir að farmur fór af bíl nærri Korputorgi.

Samkvæmt upplýsingum frá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu virðist sem að farmur hafi farið af bíl og hafnað á veginum.

„Við fengum upplýsingar um málið um klukkan átta og var lögreglubíll sendur á staðinn til að kanna málið,“ segir Hörður Lilliendahl, varðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar, í samtali við Vísi.

Ertu með myndir af vettvangi? Endilega sendu okkur á ritstjorn@visir.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×