Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi segir að allir níu verð fluttir með flugi frá Höfn í Hornafirði til Reykjavíkur. Þeir eru þó allir með góð lífsmörk.
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfesti við fréttastofu á fimmta tímanum að von væri á tveimur þyrlum Gæslunnar til Reykjavíkur á sjötta tímanum. Sex væru fluttir með þyrlunum sem farnar væru í loftið.
Þá myndi flugvél Gæslunnar, sem var við eftirlitsflug og flaug til Hafnar, í framhaldinu ferja þrjá til viðbótar. Afar fátítt er að tvær þyrlur og flugvél Gæslunnar komi að sama útkallinu að sögn Ásgeirs.
Mikil hálka var á veginum þegar slysið varð og var honum lokað vegna slyssins. Samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar er vegurinn enn lokaður.
Uppfært klukkan 17.45
Fyrri þyrla Landhelgisgæslunnar lenti við Landspítalann um hálf sexleytið með þrjá af hinum slösuðu innanborðs. Von er á síðari þyrlunni innan nokkurra mínútna og flugvélinni í framhaldinu.