Ragnar Kr. Guðmundsson, veitingamaður og stofnandi Lauga-Áss á Laugarásvegi greindi frá því í nóvember að rekstrinum yrði hætt um jólin eftir 43 ára rekstur en staðurinn hefur öðlast fastan sess í hjörtum margra Reykvíkinga.
Guðmundur Kristján Ragnarsson, sonur Ragnars segir í samtali við Vísi að viðbrögðin hafi komið föður sínum á óvart en greinilegt er að margir sjái á eftir staðnum.
„Hann var svo hissa hvað það voru margir sem voru drullufúlir með að hann væri að hætta.“

Verður með opið áfram
Næsta mánudag, 9. janúar og fram á laugardagskvöld verða í boði þrír mismunandi réttir á Lauga-Ási á einungis 3.500 krónur. Fólk á vegum Neistans verður á staðnum til að taka við greiðslum og gestum boðið upp á að greiða hærri upphæð til samtakanna. Opið verður frá klukkan 11 á daginn og fram á kvöld.
Ragnar hyggst ekki láta þar við sitja heldur halda staðnum opnum áfram eftir söfnunarvikuna í takmarkaðan tíma.

Feðgarnir hafa sett sér það markmið að safna tíu milljónum króna fyrir Neistann á þessum sex dögum en fólki verður einnig frjálst að leggja inn á sérstakan söfnunareikning samtakanna.
Guðmundur segir að langveikum börnum og fjölskyldum þeirra verði sömuleiðis boðið að koma og eiga saman gleðistund á Lauga-Ási. Hann stendur að venju þétt við bakið á föður sínum og mun aðstoða við eldamennskuna og uppvaskið.
„Pabba langaði bara að gera eitthvað og þetta var niðurstaðan. Það var svo mikil aðsókn hérna þegar hann sagðist ætla að hætta að fólk var liggur við að láta keyra sig í sjúkrabíl hingað. Þetta var fáránlegt!“
Var gallharður á því að loka um áramótin
Guðmundur segir að pabbi sinn hafi verið gallharður á því að loka um síðustu áramót.
„Tíminn er bara kominn. Það tekur allt sinn endi,“ sagði Ragnar í kvöldfréttum Stöðvar 2 í nóvember. „Nú er minn tími kominn. Ég verð að hætta. Mig langar að hætta á toppnum.“ Margir fastagestir tóku þessum tíðindum óstinnt upp.
Guðmundur segir að honum hafi þó aðeins snúist hugur eftir fjölda áskorana.
„Það er búið að ýta svo mikið á kallinn að hann hafi aðeins lengur opið svo að þegar þetta er búið þá ætlar hann að opna aftur en bara á miðvikudögum, fimmtudögum, föstudögum og hálfan laugardag í einhverja mánuði, hann veit ekki hversu lengi.“ Guðmundur bætir við að sú opnun verði auglýst betur þegar nær dregur.
Að lokum stendur til að halda aðra söfnun, í það skiptið fyrir Umhyggju – Félag langveikra barna.
„Það er rosalega mikið búið að hringja og það skilur enginn í okkur af hverju hann er að hætta. Þetta er örugglega best rekna veitingahús á Íslandi,“ segir Guðmundur.
Á meðan faðir sinn sé við góða heilsu vilji hann að hætta með reisn og á eigin forsendum. „Hann búinn að vera að þessu í 43 ár og hann algjörlega elskar þetta. Þetta verður bara að koma í ljós.“
„Hugsaðu þér að vera orðinn áttræður og geta hætt svona fallega. Mér finnst það bara geggjað,“ segir stoltur sonurinn sem verður til taks í eldhúsinu eftir helgi.