Enski boltinn

Antony klessukeyrði kaggann á gamlársdag

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Brasilíski landsliðsmaðurinn Antony er á sínu fyrsta tímabili hjá Manchester United.
Brasilíski landsliðsmaðurinn Antony er á sínu fyrsta tímabili hjá Manchester United. getty/Naomi Baker

Bílferð Antonys, leikmanns Manchester United, á gamlársdag endaði heldur illa.

Á leið sinni heim eftir 0-1 sigur United á Wolves á gamlársdag keyrði Antony BMW X6 bíl sinn út af veginum sem var háll eftir rigningu.

Lögregla var kölluð á staðinn. Hún lét Antony blása en Brassinn var allsgáður. Antony var einn í bílnum sem kostaði hann hundrað þúsund pund, eða rúmlega sautján milljónir íslenskra króna.

Antony skoraði fyrsta mark United í 3-1 sigrinum á Everton í ensku bikarkeppninni á föstudaginn. Hann hefur alls leikið fimmtán leiki fyrir United og skorað fjögur mörk.

United keypti Antony frá Ajax fyrir áttatíu milljónir punda í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×