Handbolti

„Hægt að horfa á það þannig að við línu­mennirnir séum ekki alveg á sama stað“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Elliði Snær hefur engar áhyggjur af línumannsstöðunni fyrir leikinn í kvöld. 
Elliði Snær hefur engar áhyggjur af línumannsstöðunni fyrir leikinn í kvöld.  Vísir/vilhelm

Elliði Snær Viðarsson segist vera klár í slaginn fyrir leikinn gegn Portúgal í kvöld en Ísland mætir Portúgal klukkan 19:30 í fyrsta leik liðsins á HM.

Ákveðin gagnrýni heyrðist um liðið um helgina þegar Ísland mætti Þjóðverjum í tvígang í æfingarleikjum en hún snerist um varnarleik íslenska liðsins. Elliði leikur stórt hlutverk í varnarleiknum.

„Það vantar kannski að byggja upp ákveðið traust á milli okkar, eða að við fáum þessa tilfinningu hvenær við eigum að hjálpa og ákveðnar tímasetningar. Þetta er bara ákveðnar fínpússningar,“ segir Elliði.

Sumir hafa einfaldlega áhyggjur af línumannsstöðunni fyrir þetta mót en Elliði er einmitt línumaður ásamt þeim Ými Erni Gíslasyni og Arnari Frey Arnarssyni.

„Þetta er ekkert að fara í okkur. Þetta var vitað ef maður horfir á hópinn. Við erum með heimsklassa leikmenn í öllum stöðum. Við erum með góða línumenn en við erum samt ekki í bestu liðum í heiminum og ekki að spila í stærstu keppnunum í heimi. Það er alveg hægt að horfa á það þannig að við línumennirnir séum ekki alveg á sama stað og aðrir í liðinu. En það bara skiptir okkur engu máli, þetta verður bara geggjað.“

Kristianstad Arena er 4700 manna höll og fer leikurinn þar fram í kvöld. Búist er við þúsund Íslendingum á leikinn.

„Það er bara geðveikt að það séu svona margir að koma og það er geðveikt að það sé svona mikil umræða í kringum liðið. Maður myndi ekki vilja hafa þetta neitt öðruvísi.“

Hér að neðan má sjá viðtalið við Elliða sem tekið var fyrir æfingu liðsins í gær.

Klippa: Hægt að horfa á það þannig að við línu­mennirnir séum ekki alveg á sama stað



Fleiri fréttir

Sjá meira


×