Innlent

Mál Friðfinns tekið fyrir í héraðsdómi

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Friðfinnur Freyr Kristinsson.
Friðfinnur Freyr Kristinsson.

Mál Friðfinns Freys Kristinssonar, sem fyrirfór sér í desember síðastliðnum, verður þingfest í héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Verður mál hans rekið á grundvelli laga um horfna menn þannig að hægt verði að fara með bú Friðfinns eins og hann sé látinn.

Þetta staðfestir Garðar Guðmundur Gíslason, lögmaður Séra Kristins Ágústs Friðfinnssonar, föður Friðfinns í samtali við fréttastofu. Mbl.is greindi fyrst frá. 

Bróðir Friðfinns, Kolbeinn Karl Kristinsson, greindi frá því 2. desember að Friðfinnur hafi synt út á sjó. Það sást af þeim myndböndum sem til voru af Friðfinni þann dag sem hann hvarf og lögregla tók saman. 

Garðar segir að mál sem þessi séu afar fátið. Uppfylla þurfti ströng lagaskilyrði þannig að úrskurða megi horfna menn látna, þrjú ár hið minnsta þurfi að líða áður en hægt sé að fá úrskurð um að menn séu látnir.

„Á morgun verður leitað eftir úrskurði um að fara megi með bú Friðfinns eins og hann sé látinn,“ segir Garðar. Þannig verði stigið ákveðið milliskref.

„Öll atvik benda til þess að Friðfinnur sé látinn en málið verður sett í þennan farveg á morgun,“ segir Garðar Guðmundur.

Vert er að taka fram að í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Píeta samtökin. Síminn hjá Pieta-samtökunum er jafnframt opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan pieta.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×