Greint var frá því í dag að rafbílaframleiðandinn hefði lækkað verð á bifreiðum, bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum. Lækkunin er mismikil eftir tegundum og útfærslu bílanna en í Danmörku nam lækkun allt að þrjátíu prósentum.
Danska ríkisútvarpið greinir frá því að fjölmargir væru pirraðir yfir fréttunum. Bílasalar sem sætu á notuðum Teslum væru í öngum sínum. Aðrir, sem væru nýbúnir að kaupa Teslur, hefðu getað sparað sér fleiri hundruð þúsund.
Tuttugu prósenta lækkun á Íslandi
Eins og fyrr segir lækkaði verð hér á landi um allt að tuttugu prósent ef miðað er við söluverð með virðisaukaskatti. Viðskiptablaðið greinir frá því að nýjasta tegundin, jepplingurinn Model Y, hafi lækkað mest bíla eða um fimmtung. Þannig fari ódýrasta útfærsla bílsins úr 8,1 milljón niður í 6,5.
Verð á fólksbílnum Tesla Model 3 lækkar öllu minna. Ef miðað er við ódýrustu útfærsluna nemur lækkunin um 200 þúsund krónum.
Fjörugar umræður sköpuðust í Facebook-hópnum „Tesla eigendur og áhugafólk“ í dag vegna lækkunarinnar. Einn bölvaði því að hafa keypt bíl í desember. Hefði hann keypt bílinn í dag væri hann um 421 þúsund krónum ódýrari. Aðrir taka lækkuninni fagnandi.
Friðrik Pálsson, eigandi Hótel Rangár, hefur fylgst vel með rafbílavæðingunni hér á landi. Hann var í hópi fjögurra sem riðu á vaðið og voru þeir fyrstu til að flytja Teslur hingað til lands. Hann segir í samtali við fréttastofu að lækkunin geti ekki talist annað en jákvæð.
„Alveg stórkostlegt“
„Mér finnst eiginlega bara alveg stórkostlegt. Þetta eru ótrúlegar fréttir í rauninni, að það sé hægt í þessari stöðu sem nú er í gangi að hægt sé að lækka verð á bílum. Ég teldi miklu meiri ástæðu til þess að vera óánægður ef að bílarnir hefðu hækkað það mikið í verði að það yrði ómögulegt fyrir þá sem ætluðu sér að kaupa eftir áramót að kaupa þá ekki.“
Hann segir að Tesla virðist hafa greitt upp upphaflegan hönnunarkostnað á bílunum og því tekist að lækka verð. Framleiðandinn hafi hingað til breytt útliti Teslunnar lítið en hugbúnaðurinn sé þó uppfærður mjög reglulega. Eigendur eldri bíla sitji því ekki í súpunni.
„Ég vona að þetta verði til þess að virkilega hleypa lífi í rafmagnsbílaflota Íslendinga. Mér finnst líklegt að þetta ýti enn frekar undir það að við hröðum þessari umbyltingu í umferð landsmanna, þessi orkuskipti í samgöngum sem okkur dreymir um.“