Innlent

Hætta leit í dag

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Fjölmargir tóku þátt í leitinni í dag.
Fjölmargir tóku þátt í leitinni í dag. Vísir/Egill

Leit að Modestas Antanavicius hefur að mestu verið hætt í dag án árangurs. Hátt í 150 björgunarsveitarmenn ásamt lögreglu og landhelgisgæslu tóku þátt í umfangsmikilli leit að manninum í Borgarfirði í dag.

Ásmundur Kristinn Ásmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Vesturlandi, segir að þyrla, fjölmargir drónar og fjórtán leitarhundar hafi verið notaðir við leitina ásamt kafara frá sérsveitinni. 

Síðast sást til Modestas á laugardaginn fyrir viku og biðlar Ásmundur til fólks í Borgarfirði að kanna bílskúra og sumarbústaði en leitarsvæðið spannar tugi kílómetra. Farið er um bæði á landi og sjó. 

Lögregla hefur ekki fengið neinar vísbendingar um ferðir Modestas. Það sem er vitað er að maðurinn hélt fótgangandi af stað hinn 7. janúar síðastliðinn og tók ekki með sér síma. Leit verður haldið áfram á morgun.

Lögregla leitaaði að Modestas á nokkuð stóru svæði í Borgarfirði í dag.Vísir/Samsett/Egill

Tengdar fréttir

Umfangsmikil leit að Modestas stendur enn yfir

Hátt í 150 björgunarsveitarmenn, ásamt lögreglu og landhelgisgæslu, taka þátt í umfangsmikilli leit að Modestas Antanavicius. Síðast sást til Modestas á laugardag síðastliðinn 7. janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×