Atvikið átti sér stað skömmu fyrir lokun í verslunarmiðstöðinni, seinnipartinn í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu mun maðurinn hafa misst stjórn á sér inni í verslun H&M á annarri hæð Kringlunnar og barið niður gínur sem stóðu í versluninni. Því næst hafi hann farið niður á fyrstu hæð og kýlt gesti og gangandi.
Sigurjón Örn Þórsson framkvæmdastjóri Kringlunnar staðfestir atvikið í samtali við Vísi.
„Hann lendir í einhverjum ryskingum á leið sinni niður á neðri hæð, hann er ekki lengi án þess að verða yfirbugaður. Ég held að það séu einhverjar þrjár til fjórar mínútur frá því að tilkynning berst í stjórnstöð.“
„Á leið sinni frá annarri hæð niður að fyrstu þá verða einhverjar ryskingar að minnsta kosti á tveimur stöðum skilst okkur. Hann er yfirbugaður þar af öryggisvörðum og lögregla kölluð til. Hún kom mjög hratt á staðinn skildist mér,“ segir Sigurjón Örn.
Öryggisverðir hafi haldið manninum í taki þar til lögregla mætti á vettvang.
Eins og fyrr segir slasaðist öryggisvörður í átökunum en Sigurjón Örn segist ekki hafa upplýsingar um líðan annarra gesta.
„Öryggisvörður sem átti í útistöðum við viðkomandi þurfti að leita lækninga. En það er víst ekki alvarlegt en engu að síður auðvitað alltaf alvarlegt þegar menn verða fyrir hnjaski.“