Lífið

Á löggustöð í úlpu með frosinn gogg

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Gæsin komst í hlýjuna á lögreglustöðinni.
Gæsin komst í hlýjuna á lögreglustöðinni. lögreglan á suðurnesjum

Lögreglan á Suðurnesjum fann gæs með frosinn gogg á vappi í gær og bauð henni að hlýja sér í úlpu á lögreglustöðinni.

„Við munum eftir frostavetrinum mikla 2023 en þá fundum við þessa öðlings gæs á vappi. Eitthvað var henni kalt greyinu og var hún með gogginn frosinn lokaðan,“ segir í færslu lögreglunnar á Suðurnesjum á Facebook:

Vegfarandi benti lögreglu á gæsina og lagði til að gæsin yrði pakkað í úlpu og gærð í hlýjuna á lögreglustöðinni. 

„Nú kúrir hún á gólfinu hjá okkur og bíður þess að goggurunn þiðni. Hún biður að heilsa öllum og minnir fólk á að klæða sig vel.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.