Handbolti

„Mjög á­nægður með að fara af velli með tíu marka sigur“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Guðmundur lét vel í sér heyra á hliðarlínunni.
Guðmundur lét vel í sér heyra á hliðarlínunni. Vísir/Vilhelm

„Ég vil segja það,“ sagði Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari er hann var spurður hvort frammistaða Íslands í sigrinum gegn Grænhöfðaeyjum í kvöld hefði ekki verið fagmannleg.

Ísland hóf leik í milliriðli heimsmeistaramótsins í handbolta með tíu marka sigri, lokatölur 40-30 strákunum okkar í vil. Grænhöfðaeyjar spilar einstakan sóknarleik en liðið tekur alltaf markvörð sinn út af til að vera í yfirtölu.

„Þetta þróaðist svipað og ég bjóst við. Það er ekki auðvelt að slíta sig frá þeim, þeir koma hægt upp völlinn og byrja að spila sjö á móti sex. Þetta krefst gríðarlegrar þolinmæði og aga, þetta er ekkert altlaf einfalt. Ég er mjög ánægður með það, gekk á endanum mjög vel.“

„Sóknarleikurinn gekk mjög vel, vorum með góða skotnýtingu. Margt jákvætt við leikinn, nýtum allt liðið en náðum að hvíla mikilvæga leikmenn. Frábært að geta það. Við tókum þann pól í hæðina að við myndum hvíla leikmenn í þessum leik og gott að það gekk upp. Nú er bara mikilvægur leikur gegn Svíum, verður spennandi að fást við þá.“

„Ekki til að byrja með. Þurftum tíma til að komast inn í leikinn, síðan varð þetta betra og betra fannst mér. Er alls ekki einfalt,“ sagði Guðmundur um vörn Íslands gegn yfirtölunni.

Alls komust 11 leikmenn Íslands á blað í kvöld og allir fengu mínútur.

„Við byrjuðum í Kóreu-leiknum, að hvíla og deila þessu á milli leikmanna, það gekk fullkomlega upp þar líka. Síðan var hvílt enn meira í dag getum við sagt, það var planið. Þess vegna er ég mjög ánægður með að fara af velli með tíu marka sigur, mjög sterkt fyrir okkur. Þurfum að halda þessu áfram, einn leikur í einu.“

„Vitum að við þurfum að spila mjög vel til að vinna en það er allt mögulegt. Þetta verður bara gríðarlega skemmtilegt. Verður svaka stemning, uppselt á leikinn og við ætlum að njóta þess að spila,“ sagði Gummi að endingu um leikinn gegn Svíþjóð.

Klippa: Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari: Mjög á­nægður með að fara af velli með tíu marka sigur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×