Magnús ræddi við Íslenska listann um lagið og það sem er fram undan.
„Lagið er svokölluð sjálf-útgáfa en það fékk beinan stuðning frá Spotify og var bætt við á lagalistann Tropical House, sem er með yfir 2,1 milljón fylgjendur. Mér finnst lagið auðvelt á eyrað með fallegum melódíum og texta sem mér þykir vænt um,“ segir Magnús en hann samdi og pródúseraði lagið að mestu árið 2021.
„ Svo tók ég mér góðan tíma í að finna því réttan farveg, en ég skoðaði upprunalega að gefa það út í gegnum svokallað indie plötufyrirtæki. Ég ákvað síðan að gefa það út sjálfur, sem ég sé ekki eftir í dag þar sem laginu hefur vegnað nokkuð vel hingað til.“
Magnús var með yfir tíu milljón streymi árið 2022 og vonast til að gefa út meira af tónlist á árinu. Þó segist hann hafa breytt aðeins hugarfarinu varðandi það hvernig hann vinnur og gefur út.
„Ég reyni núna að gefa mér góðan tíma í hvert verkefni, passa að ég hafi gaman að því og að útgáfan fái að njóta sín, frekar en að gera þetta í flýti og ætla að gefa út ákveðið mörg lög á ákveðnum tíma. Ég hef líka reynt að passa að hvert lag sé með smá game plan áður en það er gefið út.
Mér finnst ég hafa verið mjög heppinn undanfarið ár og ég hlakka mikið til að byggja ofan á það. Mér hefur vegnað vel í þessum tónflokki, Tropical House, eða Chill House eins og það er stundum kallað. Ég er forvitinn að sjá hvernig framhaldið verður.“

Magnús er með um 400 þúsund mánaðarlega hlustendur á Spotify um þessar mundir sem Magnus Gunn en hann er einnig með tónlistarverkefnið MagFi sem hefur gengið vel.
Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga frá klukkan 14:00-16:00 á FM957.
Lög íslenska listans:
Íslenski listinn á Spotify: