Séra Gunnar var látinn fara úr Digranesprestakalli í kjölfar ásakana um kynferðislega og kynbundna áreitni og einelti. Teymi á vegum Þjóðkirkjunnar komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði tíu sinnum gerst brotlegur við reglur kirkjunnar.
Morgunblaðið greindi frá því í dag að Auður Björg Jónsdóttir, lögmaður séra Gunnars, hafi sent erindi til kirkjuþings þess efnis að Agnes M. Sigurðardóttir biskup hafi mögulega verið óhæf til að dæma um málið og krafðist því úrskurðar forseta kirkjuþings.
Í erindinu var vísað til þess að Agnes hafi verið skipuð í embættið til fimm ára þann fyrsta júlí 2012 og skipunartími að þeim tíma loknum verið framlengdur um önnur fimm ár, út júní 2022.
Frá þeim tíma hafi hún ekki verið endurkjörin og því skort umboð, óháð nýjum starfsreglum kirkjuþings um að kjörtímabil biskups skuli vera sex ár í senn. Það leiði ekki til þess að skipunartíminn framlengist sjálfkrafa.
Pétur Georg Markan, biskupsritari Biskupsstofu, segir útskýringar lögmannsins ekki halda og kallar erindið ekki á viðbrögð af þeirra hálfu.
„Biskup hefur fengið lögskýringu á sinni stöðu þannig hún er trygg og örugg og hefur í rauninni ekkert með þetta tiltekna mál að segja. Aukið heldur er mikil eining á milli forseta Kirkjuþings og biskups Íslands, sem eru báðar konur og hafa nú tekið margan slaginn. Þannig þær eru bara bak í bak í málefnum kirkjunnar, við höfum engar áhyggjur af þessu,“ segir Pétur.
Mögulega sé um að ræða tilraun til að afvegaleiða umræðuna. Hvort að útspil lögmanns Gunnars sé til marks um að þau séu orðin ráðaþrota vill Pétur ekki segja.
„En það er kannski áhugavert það sem Biskup Íslands lét hafa eftir sér í Morgunblaðinu síðustu helgi, að hún upplifir margt sem kona á biskupsstól sem hún efast um að aðrir þyrftu að þurfa þola og kannski er þetta, að efast um stöðu hennar og ábyrgð, einhvers konar birtingamynd þess,“ segir Pétur.
Staðan í Digraneskirkju sé góð í dag með fullskipað prestakall.
„Hann er kominn þarna tímabundið inn séra Alfreð Finnsson sem sóknarprestur, þannig að hann ásamt hinum góðu prestunum í prestakallinu eru að vinna frábæra vinnu núna og þetta er bara eins og öll önnur verkefni, þetta skrefast áfram og leysist á endanum,“ segir Pétur.