Lífið

Paris Hilton orðin móðir

Atli Ísleifsson skrifar
Samband þeirra Paris Hilton og Carter Reum hófst árið 2019.
Samband þeirra Paris Hilton og Carter Reum hófst árið 2019. Getty

Bandaríska raunveruleikastjarnan Paris Hilton og eiginmaður hennar Carter Reum hafa eignast sitt fyrsta barn saman.

Hilton greinir frá þessu á Instagram-síðu sinni þar sem sjá má hönd lítils barns með textanum: „Þú ert nú þegar elskuð meira en orð fá lýst.“

Hin 41 árs Hilton og hinn 41 árs Reum gengu í það heilaga í nóvember 2021, en frá því að samband þeirra hófst árið 2019 hafa þau verið opin með það að þau dreymi um að eignast saman börn. Reum á fyrir dótturina Evie, ellefu ára, með raunveruleikastjörnunni Laura Bellizi.

Hilton staðfestir í samtali við People að hjónin hafi eignast dreng með aðstoð staðgöngumóður. „Það hefur alltaf verið draumur minn að verða mamma og ég er svo ánægð með að leiðir okkar Carter lágu saman. Ég er svo ánægð að stofna þessa fjölskyldu okkar saman og hjörtu okkar springa af ást til drengsins okkar,“ segir Hilton.

Hún hefur ekki gefið upp nafnið á drengnum.

Hilton greindi frá því í lok 2021 að þau hjónin hafi hafið glasameðferð í þeirri von að eignast tvíbura, dreng og stúlku. Hún sagði þá að raunveruleikastjarnan Kim Kardashian hafi sagt henni frá þeim möguleika að eignast barn með aðstoð staðgöngumóður, en Kardashian eignaðist þriðja og fjórða barn sitt með þeim hætti.

Paris Hilton er ein af erfingjum Hilton-hótelkeðjunnar og varð heimsfræg í upphafi aldarinnar sem fyrirsæta, söngkona og raunveruleikastjarna. 

Hún mun gefa út sjálfsævisögu sína í mars næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.