Viðskipti innlent

Icelandair lýkur fjár­mögnun tveggja Boeing 737 MAX flug­véla

Bjarki Sigurðsson skrifar
Boeing 737 MAX flugvélarnar eru í fullri eigu Icelandair.
Boeing 737 MAX flugvélarnar eru í fullri eigu Icelandair. Vísir/Kristján Már

Icelandair hefur lokið fjármögnun á tveimur Boeing 737 MAX 8. Heildarfjárhæð fjármögnunarinnar er um 67 milljónir Bandaríkjadala, rúmlega 9,5 milljarðar króna.

Fjármögnunin fór fram í samstarfi við Itasca Re og þýska bankann NORD/LB. Um er að ræða tryggingavarða fjármögnun en vélarnar sem um ræðir eru nú í fullri eigu Icelandair sem keypti þær fyrir handbært fé síðastliðið haust.

„Það er okkur mikið ánægjuefni að tilkynna um þessa mikilvægu fjármögnun í samstarfi við NORD/LB og Itasca Re. Mikil samkeppni var um aðkomu að þessu verkefni. Það skilaði sér í mjög samkeppnishæfum kjörum og staðfestir jafnframt trú fjárfesta á virði og styrkleikum MAX vélanna og ekki síður trú þeirra á Icelandair og viðskiptalíkan félagsins,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, í tilkynningu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×