Lífið

Þættir Dr Phil senn á enda

Atli Ísleifsson skrifar
Um tvær milljónir manna hafa að meðaltali horft á þátt Dr Phil sem hefur verið á dagskrá hjá CBS um árabil.
Um tvær milljónir manna hafa að meðaltali horft á þátt Dr Phil sem hefur verið á dagskrá hjá CBS um árabil. Getty

Sögu spjallþátta bandaríska sjónvarpsmannsins Dr Phil er senn á enda eftir framleiðslu 21 þáttaraðar.

Phil McGraw segir í yfirlýsingu sem hann sendi People að hann hafi verið þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa verið á skjám bandarískra sjónvarpsáhorfenda fyrir hádegi í einhver 25 ár. „Þetta hefur verð æðislegur kafli í mínu lífi og mínum starfsferli en nú held ég förinni áfram.“

Hinn 72 ára Dr Phil skrifaði undir nýjan fimm ára samning við sjónvarpsstöðina CBS árið 2018. Sá samningur er senn á enda og er nú ljóst að ekki verða framleiddir fleiri þættir af Dr Phil, í bili að minnsta kosti.

Dr. Phil hóf sjónvarpsferilinn sem fastagestur í þáttum Opruh Winfrey árið 1996 í kjölfar þess að Oprah hafði nýtt þjónustu sálfræðingsins í dómsmáli sem hún höfðaði gegn kjötframleiðanda.

Hún kunni vel að meta aðstoð Dr Phil svo hún bauð honum reglulega í þáttinn og fór svo að hann fékk sinn eigin átt árið 2002. Alls hafa verið framleiddir um fjögur þúsund þættir af Dr Phil og hafa áhorfendur verið að meðaltali tvær milljónir talsins.

„Í þessum þætti höfum við aðstoðað þúsundir gesta og milljónir áhorfenda með allt frá fíknivanda og hjónabandsvandræða til bætts geðheilbrigðis og bandauppeldis,“ segir McGraw.

Í frétt People segir þó að ólíklegt sé að þetta sé í síðasta sinn sem við sjáum Dr Phil á skjánum en hann og CBS eru sögð vera með nýtt verkefni í bígerð. Á að hleypa því af stokkunum á næsta ári og eru þættirnir sagðir eiga að hjálpa Bandaríkjamönnum að leita aftur í „kjarnagildin“. Dr Phil hefur sagst hafa miklar áhyggjur af stöðu hinnar „bandarísku fjölskyldu“.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.