Viðskipti erlent

Fimm­tán ára gamall sími á sjö milljónir

Máni Snær Þorláksson skrifar
Steve Jobs, stofnandi og fyrrum forstjóri Apple, með fyrstu útgáfu iPhone símans.
Steve Jobs, stofnandi og fyrrum forstjóri Apple, með fyrstu útgáfu iPhone símans. Getty/Jon Furniss

Fyrsti iPhone síminn kom út í júní árið 2007 og seldist í sex milljónum eintaka. Eitt þessara eintaka er nú til sölu á uppboði hjá bandaríska uppboðshúsinu LCG Auctions. Búist er við því að síminn seljist á yfir 50 þúsund dollara, eða rétt rúmlega sjö milljónir í íslenskum krónum.

Karen Green er núverandi eigandi símans en hún fékk hann að gjöf þegar hún byrjaði í nýju starfi. Green opnaði ekki símann á sínum tíma þar sem hún átti nú þegar nýjan síma.

Þessi iPhone sími endaði því uppi á hillu á heimili Green, ennþá í plastinu. Hún segir símann hafa legið á hillunni, vafinn inn í náttföt, árum saman. Í október síðastliðnum komst hún svo að því að eins sími hefði selst á uppboði fyrir rúmlega 39 þúsund dollara, um 5,5 milljónir í íslenskum krónum.

Green hafði í kjölfarið samband við uppboðshúsið sem seldi símann og sagðist eiga eins síma. Mark Montero, stofnandi LCG Auctions, segir í samtali við Business Insider að Green hafi alls ekki verið sú eina sem hafði samband eftir að síminn var seldur.

„Við fengum símtöl frá öllum en 99% þeirra voru ekki með eins síma,“ segir Montero. Green var þó með rétta símann og því var hann settur á uppboð. Uppboðið hófst í dag og því líkur þann 19. febrúar næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×