Í morgun fjallaði Vísir um að grímuklæddur maður hafi skitið á bíl í Kópavogi í gærkvöldi. Atvikið náðist á myndband.
Í samtali við fréttastofu lýsti eigandi bílsins, Ragnar Þór Egilsson, því að hann hafi setið og horft á sjónvarpið í rólegheitum þegar hann varð var við mann fyrir utan hjá sér.
„Svo allt í einu girðir hann niður um sig og fór að skíta á bílinn hjá mér"
„Ég fer að velta því fyrir mér hvort hann sé að skoða aðstæður eða eitthvað svoleiðis. Af því að hann var klæddur eins og súperman og var með hettu og eitthvað fyrir andlitinu. Svo bara fer hann. Það líða einhverjar tíu mínútur og þá kemur hann aftur,“ útskýrir Ragnar sem hélt áfram að fylgjast með manninum.
„Svo allt í einu girðir hann niður um sig og fór að skíta á bílinn hjá mér. Ég bara gapti og svo hljóp hann í burtu.“
Grunar að málið tengist nágrannaerjum
Ragnari segist ekki vita hver grímuklæddi maðurinn sé en segist gruna að málið tengist langvarandi nágrannaerjum sem hann hefur staðið í síðan árið 2018. Deilurnar tengjast þvottahúsi hússins og aðgengi annarra íbúa að því og hefur bæði farið fyrir héraðsdóm og Landsrétt. DV fjallaði talsvert um málið á sínum tíma.
„Mér dettur helst í hug að þetta sé eitthvað tengt því,“ segir Ragnar. „Ég er búinn að búa hérna síðan 1987 og það kemur enginn hingað á bakvið. Nema til að skoða aðstæður eða eitthvað svoleiðis.“
Skilur ekki þessi skilaboð
Ragnar er fatlaður og notast við hjólastól. Hann hefur því ekki farið út og skoðað aðstæður eða þrifið bílinn. Hann segist vita hvernig bíl grímuklæddi maðurinn var á, en vill ekki gefa það upp.
Hann segist ekki fyllilega gera sér grein fyrir hvað eigi að felast í þessum gjörning mannsins. „Málið er að ef þetta eru einhver skilaboð frá nágranna þá eru þau ekki nógu góð. Ég er allt of heimskur, ég skil ekki svona skilaboð." segir hann.
Ætli það sé ekki bara verið að gefa skít í mig.
Myndbandið af atvikinu má sjá hér fyrir neðan.