Erlent

Talaði um mikilvægi samvinnu þvert á flokka

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Joe Biden flutti stefnuræðu sína í nótt og talaði aðallega um innanríkismál ólíkt síðustu ræðu. 
Joe Biden flutti stefnuræðu sína í nótt og talaði aðallega um innanríkismál ólíkt síðustu ræðu.  AP Photo/Patrick Semansky

Joe Biden Bandaríkjaforseti flutti árlega stefnuræðu sína á Bandaríkjaþingi í nótt og biðlaði meðal annars til mótherja sinna í Repúblikanaflokknum að þeir hjálpuðu til við að rétta af efnahag Bandaríkjanna.

Biden undirstrikaði mikilvægi þess að þingmenn ynnu saman en Repúblikanar hafa nú náð meirihluta í fulltrúadeildinni.

Ræða Biden í gær er sögð hafa verið einskonar upptaktur að framboði hans til endurkjörs á næsta ári, sem fastlega er búist við, en forsetinn minntist þó ekki á framboð berum orðum. 

Vinsældir hans í könnunum á meðal almennings hafa verið takmarkaðar síðustu vikur og mánuði. Enda virtist forsetinn einbeita sér að innanlandsmálum og kom lítið að utanríkismálum eins og innrás Rússsa í Úkraínu, sem var megininntakið í síðustu stefnuræðu hans.

Eins og venja er með stefnuræðu forsetans var mörgum gestum boðið í þinghúsið og viðstaddir voru meðal annarra nokkrir dómarar við Hæstarétt Bandaríkjanna en einnig Bono, söngvari írsku rokksveitarinnar U2. 

Þá voru ættingjar Tyre Nichols, sem myrtur var af lögreglumönnum í Memphis á dögunum, viðstaddir ræðuna í boði forsetafrúarinnar Jill Biden.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×