Innlent

Einn á slysa­deild eftir á­rekstur

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Liðsmenn Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru sendir á vettvang.
Liðsmenn Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru sendir á vettvang. Vísir/Vilhelm

Einn var fluttur á sjúkrahús eftir nokkuð harðan árekstur tveggja fólksbíla á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar í Reykjavík á öðrum tímanum í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru sjúkrabílar og dælubíll sendir á vettvang árekstursins. Sem fyrr segir var einn fluttur á slysadeild en eru meiðsli hans talin minniháttar samkvæmt upplýsingum fréttastofu.

Nokkur töf varð á umferð vegna árekstursins en aðgerðum á vettvangi er lokið. Bílarnir tveir voru óökuhæfir eftir áreksturinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×