Southampton búið að reka Nathan Jones Smári Jökull Jónsson skrifar 12. febrúar 2023 11:45 Nathan Jones vonsvikinn á hliðarlínunn í leiknum gegn Wolves í gær. Það var hans síðasti leikur sem þjálfari Southampton. Vísir/Getty Nathan Jones hefur verið sagt upp störfum sem þjálfari Southampton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Jones tók við starfinu í nóvember.
Southampton hefur gengið illa í ensku úrvalsdeildinni í vetur og tapað síðustu fjórum deildarleikjum sínum. Liðið situr í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með fimmtán stig, fjórum stigum frá öruggu sæti. Í gær tapaði liðið fyrir Wolves á heimavelli sínum, þrátt fyrir að vera einum fleiri frá miðjum fyrri hálfleik en þá var staðan 1-0 Southampton í vil. Þetta var kornið sem fyllti mælinn hjá forráðamönnum félagsins því í morgun var tilkynnt að Nathan Jones hefði verið sagt upp störfum sem knattspyrnustjóri. #SaintsFC has parted company with Men s First Team Manager Nathan Jones.— Southampton FC (@SouthamptonFC) February 12, 2023 Jones tók við Southampton í nóvember af Ralph Hassenhuttl og hefur því aðeins verið við stjórnvölinn í þrjá mánuði. Jones náði aðeins að stýra liðinu til sigurs í einum úrvalsdeildarleik og liðið tapaði níu af þeim fjórtán sem Jones stjórnaði í öllum keppnum en Southampton komst í undanúrslit deildabikarsins og er komið áfram í fimmtu umferð ensku bikarkeppninnar. Í yfirlýsingu Southampton kemur fram að þjálfari aðalliðsins, Ruben Selles, muni stjórna næstu æfingum liðsins og undirbúa það fyrir leikinn gegn Chelsea um næstu helgi.
Enski boltinn Mest lesið Kvarta yfir því að leikmaður Barcelona káfaði á klofi leikmanns þeirra Fótbolti Þekktur sænskur fótboltaþjálfari dæmdur í fangelsi Fótbolti Guardiola vill ekkert stríð: Málinu er lokið Fótbolti Elsa setti þrjú heimsmet og varð Evrópumeistari fimmta árið í röð Sport Sá besti í heimi fer ekki fet næstu árin Handbolti Dagskráin: Risaleikur í Meistaradeildinni í Manchester Sport Úlfur óvænt rekinn frá Fjölni Íslenski boltinn Sendi pabba sínum hugljúf skilaboð fyrir Super Bowl leikinn Sport Sakar Real Madrid um að eyðileggja fótboltann Fótbolti Albert fékk bara níu mínútur í tapi á móti Inter Fótbolti Fleiri fréttir Crystal Palace ekki í miklum vandræðum Brighton lét króatískt félag breyta merki sínu Man. United fékk heimaleik og City mætir Liverpool bönunum Kennir í brjósti um Arnór en er líka á förum „Fólk má alveg dæma mig“ Lögreglan rannsakar söngva um stunguárás Slot sér ekki eftir því að hafa hvílt stjörnurnar Aston Villa áfram en vond bikarvika fyrir Spurs Liverpool úr leik eftir tap gegn liði Guðlaugs Victors Úlfarnir áfram eftir öruggan útisigur Mætir Liverpool 15 árum eftir að hafa spilað með Gerrard: „Var svo stressaður“ Brighton sneri við eftir að hafa lent snemma undir Willum og félagar úr leik eftir svekkjandi tap gegn Newcastle Stefán og félagar áfram í FA bikarnum eftir vítaspyrnukeppni Sjóðheitur Jón Daði gaf fyrstu stoðsendinguna De Bruyne bjargaði City gegn C-deildarliðinu Maguire hetja United í bikarnum Unai Emery býst við miklu af Rashford Rodri í Meistaradeildarhópi Manchester City Sjáðu mörkin sem skutu Liverpool á Wembley „Félagið setur mig í skítastöðu“ Spilaði leik með sirloin steik í skónum Tvíburar mætast í enska bikarnum: „Þetta verður mjög skrýtið“ Liverpool í tuttugasta og síðasta sæti í eyðslu Vill að stuðningsfólkið syngi söng um sig og noti ABBA lag „Þeir voru of góðir fyrir okkur“ Liverpool mætir Newcastle á Wembley eftir stórsigur á Spurs Sjáðu mörkin sem skutu Newcastle á Wembley Newcastle gerði grín að afsökun Arteta Martröð fyrir Man. Utd og Slátrarann Sjá meira