Lífið

Raquel Welch er látin

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Raquel kom fyrst fram á sjónarsviðið á miðjum sjöunda áratugnum og er einna þekktust fyrir bikiníatriðið svokallaða í kvikmyndinni One Million Years B.C frá árinu 1966.
Raquel kom fyrst fram á sjónarsviðið á miðjum sjöunda áratugnum og er einna þekktust fyrir bikiníatriðið svokallaða í kvikmyndinni One Million Years B.C frá árinu 1966. Getty

Bandaríska leikkonan og fyrirsætan Raquel Welch er látin, 82 ára að aldri.

Frá þessu greinir TMZ. Að sögn fjölskyldumeðlima lést leikkonan eftir „stutt veikindi.“

Raquel kom fyrst fram á sjónarsviðið á miðjum sjöunda áratugnum og er einna þekktust fyrir bikiníatriðið svokallaða í kvikmyndinni One Million Years B.C frá árinu 1966. Atriðið hefur oft verið nefnt eitt kynþokkafyllsta atriði kvikmyndasögunnar og átti bikiníið sem hún klæddist þar eftir að hafa áhrif á baðfatatískuna næstu árin.

Raquel lék í fjölda kvikmynda á sjöunda og áttunda áratugnum og hlaut Golden Globe verðlaunin árið 1974 fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni The Three Musketeers. 

Árið 1995 var hún á lista Empire tímaritsins yfir 100 kynþokkafyllstu stjörnur kvikmyndasögunnar og þá var hún sú þriðja á lista Playboy yfir 100 kynþokkafyllstu stjörnur tuttugustu aldarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.