Þetta kemur fram í tölvupóstum og skilaboðum sem þau sendu hvort öðru og lögmenn fyrirtækisins Dominion Voting Systems, sem framleiðir kosningavélar sem notaðar eru víða í Bandaríkjunum, komu höndum yfir vegna lögsóknar gegn Fox. Dominion hefur höfðað mál gegn mörgum aðilum og fyrirtækjum vegna umfangsmikilla ásakana um að fyrirtækið hafi staðið í kosningasvindli.
Forsvarsmenn Dominion hafa sakað Fox um meiðyrði en samkvæmt frétt New York Times gæti vinsælasta sjónvarpsstöð Bandaríkjanna verið dæmd til að greiða miklar skaðabætur, eða 1,6 milljarð dala. Dómsskjöl sem opinberuð voru í gærkvöldi innihalda mikið af samskiptum yfirmanna og starfsmanna Fox.
Trump og fulltrúar hans héldu því ítrekað fram í kjölfar kosninganna að kosningasvindl hefði kostað Trump sigur. Engar upplýsingar hafa litið dagsins ljós sem gefa til kynna að það sé rétt.
Margar af ásökunum um kosningasvindl beindust að Dominion og að vélar fyrirtækisins hefðu verið forritaðar til að breyta atkvæðum sem Trump fékk í atkvæði til Bidens. Powell hélt því meðal annars fram að um alþjóðlegt samsæri kommúnista væri að ræða og að vélarnar hefðu verið framleiddar í Venesúela.
Hæddust að viðmælendum
Meðal vinsælustu þáttastjórnenda Fox eru þau Tucker Carlson, Sean Hannity og Laura Ingraham. Samskipti þeirra sýna að þau hæddust ítrekað að tveimur ráðgjöfum Trumps, þeim Powell og Rudy Giuliani.
„Sidney Powell er að ljúga. Ég gómaði hana. Þetta er klikkað,“ skrifaði Carlson í skilaboðum til Ingraham þann 18. nóvember, skömmu eftir kosningarnar. Þann sextánda hafði hann sent sambærileg skilaboð til pródúsents
„Sidney er gjörsamlega klikkuð. Enginn mun vinna með henni. Það sama á við Rudy,“ svaraði Ingraham.
Carlson svaraði um hæl: „Áhorfendur okkar eru gott fólk og þau munu trúa þessu.“
Í öðrum skilaboðum lýsti Carlson Powell, sem var tíður gestur á Fox, sem stjórnlausri eldflaug og sagði hana stórhættulega.
Murdoch trúði ekki ásökununum
Rupert Murdoch, stjórnarformaður Fox News, hafði ekki mikla trú á ásökunum um kosningasvindl og yfirlýsingum Trumps um kosningasvindl sem klikkuðum. Þegar hann horfði á Giuliani og Powell í sjónvarpinu sendi hann skilaboð á einn af yfirmönnum Fox og sagði: „Þetta er hræðilegt og ég óttast að þetta muni skemma alla.“
Sjá einnig: Murdoch snýr baki við Trump
Við vitnaleiðslur sagði Sean Hannity, þáttastjórnandi, að hann hefði ekki trúað Powell í eina sekúndu.
Eins og blaðamaður Washington Post bendir á, kemur fram í dómsskjölunum að Hannity sagði fólki að Trump hefði tapað kosningunum með lögmætum hætti og þyrfti að sætta sig við það. Hins vegar sagði hann áhorfendum sínum á Fox allt annað.
Hannity ýtti ítrekað undir ósannar yfirlýsingar um kosningasvindl og gróf undan trausti áhorfenda á kosningaferlið.
Lögmenn Dominion segja að ekki einn einasti starfsmaður Fox, sem bar vitni í málinu, hafi sagst trúa ásökunum um kosningasvindl sem beindust að Dominion. Í lögsókn fyrirtækisins segir að starfsmenn Fox hafi vísvitandi dreift óhróðri um Dominion og að veitt gestum vettvang til að varpa fram yfirlýsingum sem starfsmenn og yfirmenn Fox vissu að væru ósannar.
Sjá einnig: Framleiðendur kosningavéla stefna á fleiri lögsóknir
Segja ásakanirnar fréttnæmar
Lögmenn Fox segja aftur á móti, samkvæmt AP fréttaveitunni, að með lögsókninni sé Dominion að ráðast á fyrsta viðauka stjórnarskrár bandaríkjanna, sem snýr að málfrelsi og frelsi fjölmiðla. Markmiðið sé að refsa Fox fyrir að fjalla um eitt af stærstu fréttamálum þessa tíma. Það að sitjandi forseti og fulltrúar hans héldu því fram að kosningasvindl hefði átt sér stað.
Þær yfirlýsingar væru fréttnæmar.
Lögmennirnir segja einnig að þegar fulltrúar Dominion lýstu yfir mótmælum gegn ummælum um kosningasvindl hafi einnig verið fjallað um það. Þættir þeirra Carlsons, Hannity og Ingraham eru skilgreindir sem skoðanaþættir og þurfa þau því ekki að lúta sömu reglum og fréttastofur vestanhafs.
Sjá einnig: Trump og Fox í eina sæng í kosningabaráttunni
Það svigrúm nýttu þau sér til að fjalla um ásakanir Trumps.
Yfirmenn harðorðir í garð þáttastjórnenda
Í dómsskjölunum kemur einni fram að yfirmenn Fox ræddu það að þáttastjórnendur sjónvarpsstöðvarinnar væru óáreiðanlegir og jafnvel klikkaðir. Einn sagði um Mariu Bartiromo að hún hlustaði sífellt á samsæringa og þeir notuðu hana til að dreifa áróðri þeirra.
Annar yfirmaður sagði að ríkissjónvarp Norður-Kóreu gerði ekki eins einhliða þætti og Lou Dobbs. Annar yfirmaður lýsti Dobbs sem klikkuðum og yfirmenn sögðu svipaða hluti um Jeanine Pirro og jafnvel um þá Tucker Carlson og Sean Hannity.
Vildu láta reka fréttakonu fyrir að leiðrétta tíst Trumps
Dómsskjölin sýna einnig fram á deilur milli fréttadeildar Fox og þáttastjórnenda. Þann 12. nóvember töluðu þau Ingraham, Carlson og Hannity um fréttakonuna Jacqui Heinrich, sem hafði fjallað um tíst frá Donald Trump þar sem hann vísaði meðal annars í umfjöllun Hannity og Dobbs og talaði um Dominion og kosningasvindl.
Heinrich sagði í eigin tísti að tíst Trumps innihéldi rangfærslur og að ekkert benti til þess að kosningasvindl hefði átt sér stað.
Carlson sendi Hannity skilaboð og bað hann um að láta reka Heinrich vegna þessarar umfjöllunar.
„Gerðu það láttu reka hana. Í alvörunni. Hvað í helvítinu? Ég er hneykslaður. Þetta verður að stöðva strax, þá meina ég í kvöld. Þetta kemur niður á fyrirtækinu, hlutabréfavirði hefur lækkað. Ég er ekki að grínast.“
Sjá einnig: Fréttamenn og þáttastjórnendur Fox deila
Hannity sendi í kjölfarið skilaboð á einn af yfirmönnum Fox og lýsti yfir óánægju með tíst Heinrich. Hann sagðist ekki skilja hvernig starfsfólk fréttastofu Fox gæti hagað sér með þessum hætti.
Heinrich eyddi tísti sínu.
Réttarhöldin í máli Dominion gegn Fox eiga að hefjast í apríl.