Lífið

Tom Sizemore í alvarlegu ástandi eftir heilablóðfall

Samúel Karl Ólason skrifar
Tom Sizemore hefur leikið í fjölmörgum vinsælum kvikmyndum í gegnum árin.
Tom Sizemore hefur leikið í fjölmörgum vinsælum kvikmyndum í gegnum árin. AP/Jordan Strauss

Leikarinn Tom Sizemore, sem er hvað þekktastur fyrir leik sinn í Saving Private Ryan, Black Hawk Down, Heat og mörgum öðrum myndum var fluttur á sjúkrahús í Los Angeles síðustu nótt. Hann er sagður hafa fengið heilablóðfall og ku vera í alvarlegu ástandi.

TMZ hefur eftir umboðsmanni Sizemores að hann hafi fundist á gólfinu heima hér sér um tvö að nóttu til, að staðartíma og að óvíst sé hvort hann muni ná sér.

Sizemore, sem er 61 árs gamall, hefur lengi átt í basli með áfengi og fíkniefni og hefur nokkrum sinnum verið handtekinn fyrir að keyra undir áhrifum áfengis, heimilisofbeldi og vörslu fíkniefna, eins og fram kemur í frétt AP fréttaveitunnar.

Hann var dæmdur árið 2003 fyrir að beita Heidi Fleiss, fyrrverandi kærustu sína ofbeldi. Árið 2009 var hann handtekinn vegna þess að hann var grunaður um að beita aðra kærustu ofbeldi og svo aftur árið 2011.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.