Lífið

Blæs á fréttaflutning um framhjáhald

Samúel Karl Ólason skrifar
Megan Fox og Machine Gun Kelly.
Megan Fox og Machine Gun Kelly. EPA/NINA PROMMER

Megan Fox, leikkonan víðfræga, sneri í dag aftur á Instagram í þeim eina tilgangi að gagnrýna fréttaflutning af meintum sambandsslitum hennar og tónlistarmannsins Machine Gun Kelly. Fjölmiðlar vestanhafs hafa um helgina sagt frá því að hún hafi komist að því að Kelly hafi haldið framhjá sér en hún segir það ekki rétt.

Vika er síðan Megan Fox eyddi reikning sínum á Instagram, eftir að hún birti mynd þar sem hún ýjaði að því að Kelly hefði haldið fram hjá sér og þau væru hætt saman.

Megan Fox og Machine Gun Kelly trúlofuðust í janúar árið 2022 en samband þeirra hófst snemma á árinu 2020. Þau kynntust við tökur á bíómyndinni Midnight in the Switchgrass.

„Þú getur bragðað óheiðarleikann, hann umlykur andardrátt þinn,“ skrifaði hún meðal annars við umrædda Instagram-mynd. Í kjölfarið hvarf síðan hennar af samfélagsmiðlinum. Það er texti úr lagi eftir Beyoncé.

Sjá einnig: Megan Fox kyndir undir orðróm um sambandsslit

Síðan birtist svo aftur í dag og er þar ein færsla. Þar stendur að enginn þriðji aðili hafi komið að sambandi hennar og Kelly að nokkrum hætti. Það ætti við raunverulegar manneskjur, spjallþjarka, einkaskilaboð eða djöfla.

„Þó mér sé illa við að ræna af ykkur handahófskenndum fréttum sem hefðu verið betur skrifaðar af ChatGPT, þurfið þið að leyfa þessari frétt að deyja og láta allt þetta saklausa fólk í friði,“ skrifaði Fox.

Netverjar og gula pressan vestanhafs hafa fjallað um að Kelly hafi mögulega haldið við gítarleikara sin, Sophie Lloyd. Í athugasemd við fyrstu færsluna sem nefnd hér að ofan skrifaði einni aðdáandi að MGK hefði líklega haldið við gítarleikarann en Fox svaraði og sagði: „Kannski var ég með Sophie.“

Nú virðist Fox vera að segja að enginn hafi haldið fram hjá.

Page Six birti í gær frétt um að samkvæmt heimildarmanni miðilsins hefði Fox fundið skilaboð á síma MGK sem hafi bent til þess að hann væri að halda framhjá henni. Í kjölfar þess hafi hún birt færslu á Instagram, tekið af sér trúlofunarhringinn og eytt Instagramsíðu sinni.

Frétt Page Six virðist vera sú frétt sem Fox er að tala um í nýjustu færslu sinni, þar sem hún segir einnig að MGK hafi ekki haldið fram hjá henni.

People sagði frá því í dag að Fox og MGK væru ekki búin að slíta trúlofun þeirra og þau væru þess í stað að reyna að bjarga sambandinu.


Tengdar fréttir

Klippti gat á samfestinginn til þess að stunda kynlíf

Leikkonan Megan Fox birti skilaboð sem hún sendi á stílistann sinn eftir að bráð nauðsyn bar að garði sem varð til þess að hún þurfti að klippa gat á samfestinginn sinn, nauðsynin var að njóta ásta með unnusta sínum Machine Gun Kelly.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.