Erlent

Kokk­ur Pút­íns sak­ar yf­ir­menn hers­ins um land­ráð

Samúel Karl Ólason skrifar
Yevgeny Prigozhin ,eigandi Wagner Group, er reiður forsvarsmönnum rússneska hersins og segir þá reyna að gera út af við málaliðahópinn.
Yevgeny Prigozhin ,eigandi Wagner Group, er reiður forsvarsmönnum rússneska hersins og segir þá reyna að gera út af við málaliðahópinn. Getty/Mikhail Svetlov

Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin, sem gjarnan er kallaður „kokkur Pútíns“, sakaði Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, og Valery Gerasimov, formann herforingjaráðs Rússlands og yfirherforingja innrásarinnar í Úkraínu, um að reyna að gera út af málaliðahópinn Wagner Group. Prigozhin sagði Shoigu og Gerasimov vera seka um landráð.

Prigozhin á Wagner en málaliðahópurinn hefur verið nokkuð umsvifamikill í Úkraínu og Prigozhin hefur verið stóryrtur um að málaliðar hans geti náð árangri á sama tíma og rússneski herinn eigi í basli. Auðjöfurinn hefur lengi verið harðorður í garð Shoigu.

Eftir að Gerasimov, sem er bandamaður Shoigu, tók við stjórn innrásarinnar hafa aðstæður Wagner í Úkraínu versnað. Málaliðahópnum virðist hafa verið meinað að ráða menn úr fangelsum Rússlands og málaliðar hópsins hafa ítrekað kvartað yfir skort á stuðningi frá Varnarmálaráðuneytinu. Þeir hafa meðal annars kvartað yfir skorti á skotfærum.

Sjá einnig: Kokkur Pútíns hættur að ráða fanga í Wagner

Prigozhin er kallaður „kokkur Pútíns“ þar sem hann rak veitingastað í St. Pétursborg sem Pútin sótti reglulega.

Prigozhin hefur einnig gert umfangsmikla samninga við rússneska ríkið og framleiðir meðal annars mat fyrir skólabörn og hermenn í Rússlandi. Hann er einnig sagður fjármagna rekstur Internet Research Agency sem er gjarnan þekkt sem tröllaverksmiðja Rússlands. Þá er hann eftirlýstur í Bandaríkjunum vegna afskipta IRA af forsetakosningunum 2016.

Hefur lengi gagnrýnt forsvarsmenn hersins

Auðjöfurinn hefur sent frá sér nokkur skilaboð á undanförnum dögum en í þeim sem hann sendi í dag var hann mjög harðorður í garð yfirmanna hersins. Hann sagði þá vísvitandi vera að drepa málaliða Wagner meðal annars með því að senda hópnum ekki skotfæri og önnur hergögn.

Prigozhin hélt því einnig fram að Shoigu og Gerasimov hefðu gefið skipanir um að málaliðar Wagner fengju ekki skóflur til að grafa skotgrafir. Málaliðar Wagner væru að deyja í mun meira magni en almennir hermenn við Bakhmut í Dónetsk héraði.

Þetta sagði auðjöfurinn vera til marks um ætlanir ráðuneytisins og hersins um að gera útaf við málaliðahópinn. Það væri til jafns við landráð.

Prigozhin hefur áður sagt að Varnarmálaráðuneytið hafi reynt að eigna sér heiðurinn af vel heppnuðum sóknum Wagner við Bakhmut.

Sjá einnig: Kokkur Pútíns segir hvert hús í Bakhmut vera virki

Rússar hafa í marga mánuði reynt að ná Bakhmut og eru sagðir hafa orðið fyrir gífurlegu mannfalli við bæinn. Forsvarsmenn Wagner eru sagðir hafa sent fanga í bylgjum gegn varnarlínum Úkraínumanna. Þegar Úkraínumenn eru þreyttir og skortir skotfæri munu vanari og betur þjálfaðir málaliðar hafa verið sendir fram.


Tengdar fréttir

Lítið sem kom á óvart í stefnuræðu Pútíns

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hét því enn og aftur fram í morgun að Rússar bæru ekki ábyrgð á stríðinu í Úkraínu og að Vesturlönd væru að reyna að gera útaf við ríkið. Þetta sagði Pútín í stefnuræðu sinni sem hann hélt í dag. Ræðuna átti fyrst að halda í desember en henni var frestað vegna stríðsins í Úkraínu.

Saka Rússa um glæpi gegn mannkyninu

Yfirvöld í Bandaríkjunum segja hersveitir Rússa hafa framið glæpi gegn mannkyninu í Úkraína. Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, opinberaði þetta í ræðu á öryggisráðstefnunni í München í dag og sagði nauðsynlegt að hinir seku yrðu dregnir til ábyrgðar fyrir glæpina.

Alræmdur málaliðaforingi skotinn í höfuðið á stuttu færi

Hinn alræmdi herforingi og málaliði Igor Mangushev er látinn eftir að hafa verið skotinn í höfuðið af stuttu færi við varðstöð í Kadiivka. Eiginkona hans segir um aftöku að ræða og ýjað hefur verið að því að yfirmaður Wagner-hópsins hafi fyrirskipað morðið.

Kirkjugarður Wagner hefur sjöfaldast að stærð

Kirkjugarður þar sem málaliðar Wagner Group eru jarðaðir hefur margfaldast af stærð á undanförnum mánuðum. Málaliðahópurinn er sagður hafa orðið fyrir miklu mannfalli í austurhluta Úkraínu en flestir þeirra sem falla eru sagðir vera fangar sem tóku tilboði um sex mánaða þjónustu í Wagner í skiptum fyrir frelsi.

Tóku eigin málaliða af lífi með sleggju

Rússneskir málaliðar Wagner Group birtu um helgina myndband sem sýndi meðlim hópsins tekinn af lífi með sleggju. Rússneski auðjöfurinn sem rekur málaliðahópinn og tengist Vladimír Pútín, forseta Rússlands, nánum böndum, lofaði myndbandið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×