Lífið

Kendall Jenner og Bad Bunny sögð stinga saman nefjum

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Kendall Jenner og Bad Bunny.
Kendall Jenner og Bad Bunny.

Ofurfyrirsætan Kendall Jenner og rapparinn Bad Bunny virðast vera að slá sér upp saman. Heimildir slúðurmiðla herma að þau hafi sést kyssast fyrr í vikunni hafi síðan þá sést saman á stefnumóti í Los Angeles. 

Slúðurmiðillinn TMZ birtir myndband þar sem þau sjást yfirgefa veitingastað í sitt hvoru lagi, fyrst Kendall og skömmu síðar Bad Bunny. Stefnumótið hafi jafnvel verið tvöfalt þar sem hjónin Justin Bieber og Hailey Bieber sáust yfirgefa sama stað skömmu síðar, jafnframt í sitt hvoru lagi. 

Eftir að orðrómur um samband þeirra Kendall og Bad Bunny fór á kreik virðast aðdáendur rapparans ekki beint hafa tekið vel í sambandið, sennilega í ljósi sambandssögu hennar. 

Bad Bunny, sem er frá Puertó Ríkó, hefur undanfarin ár verið einn vinsælasti tónlistarmaður heims. Tónlist hans flokkast undir svokallað reaggeton sem hefur verið langvinsælasta tónlistarstefna hins spænskumælandi heims undanfarin ár. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×