Innlent

HÍ býður upp á meistara­nám í af­brota­fræði

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Háskóli Íslands býður nú upp á meistaranám í afbrotafræði.
Háskóli Íslands býður nú upp á meistaranám í afbrotafræði. Vísir/Vilhelm

Háskóli Íslands býður upp á meistaranám í afbrotafræði frá og með haustmisseri 2023. Námið er ætlað fólki í störfum við ólíkar stofnanir sem fást við glæpi og refsingar.

„Afbrotafræðin sem sjálfstæð fræðigrein í háskólum hefur vaxið mjög á undanförnum áratugum í öðrum ríkjum. Þá hafa afbrotafræðinámskeið við HÍ notið mikilla vinsælda og almennt mikilvægi afbrotafræðinnar aukist,“ segir Margrét Valdimarsdóttir nýr dósent í félags- og afbrotafræði í tilkynningu frá Háskóla Íslands.

Í náminu verður meðal annars fengist við afbrot og frávikshegðun og hlutverk löggæslu- og réttarvörslukerfisins í tengslum við kynferðisbrot. Margrét segir að afbrotafræðin snúist í grunninn um að rannsaka þróun, skýringar og afleiðingar brota og refsilaga.

„Framhaldsnám í afbrotafræði getur því hentað nemendum með grunnháskólagráðu úr flestum greinum. Nemendur í afbrotafræði erlendis hafa fjölbreyttan grunn, t.d. félagsfræði, sálfræði, lögfræði, lögreglufræði eða hagfræði. Námið getur hentað fólki sem starfar eða hefur starfað í réttarvörslukerfinu mjög vel. Afbrotafræði er hugsuð fyrir fólk sem hefur áhuga á félagslegu samhengi afbrota, refsinga og löggæslu.“

Nánar um fagið á vefsíðu Háskóla Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×