Madrídingar misstigu sig í toppbaráttunni annan leikinn í röð

Madrídingar þurftu að sætta sig við jafntefli annan leikinn í röð.
Madrídingar þurftu að sætta sig við jafntefli annan leikinn í röð. Vísir/Getty

Spánarmeistarar Real Madrid þurftu að sætta sig við markalaust jafntefli er liðið heimsótti Real Betis í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Þetta var annað jafntefli Madrídinga í röð í deildinni eftir að liðið gerði 1-1 jafntefli í borgarslagnum gegn Atlético Madrid um seinustu helgi. Real Madrid er því búið að misstíga sig í toppbaráttunni tvo leiki í röð og er nú níu stigum á eftir toppliði Barcelona.

Real Madrid er með 53 stig í öðru sæti eftir 24 leiki.  Real Betis, sem hafði unnið þrjá leiki í röð fyrir leik kvöldsins, situr hins vegar í fimmta sæti með 41 stig, aðeins þremur stigum á eftir Real Sociedad sem situr í fjórða og seinasta Meistaradeildarsætinu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira