Viðskipti innlent

Nýtt þyrlu­fyrir­tæki með höfuð­stöðvar á Ólafs­firði

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nýja þyrlan.
Nýja þyrlan. Ágeir Helgi Þrastarson

HeliAir Iceland er nýjasta þyrlufyrirtæki landsins en félagið verður með höfuðstöðvar sínar á Ólafsfirði. Félaginu var úthlutað flugrekstrarleyfi frá Samgöngustofu á dögunum og blés til opnunarhófs af því tilefni.

Í tilkynningu kemur fram að starfsfólk HeliAir Iceland hafi áratuga reynslu í þyrluþjónustu bæði á Íslandi og erlendis. Allir flugmenn félagsins eru íslenskir og leggur félagið mikla áherslu á að flugmenn þekki vel til íslenskra aðstæðna. Félagið mun halda úti þyrlurekstri bæði á Ólafsfirði og í Reykjavík.

„Félagið hefur fest kaup á glæsilegri þyrlu, Bell 407 GXP, sem bæði nýtist í farþegaflug og í verkflug, til dæmis við hífingar og lagningu á göngustígum á viðkvæmum svæðum. Þyrlan tekur allt að sex farþega og er útbúin sérstökum gluggum sem henta einstaklega vel í útsýnisflugi,“ segir í tilkynningu.

„Við erum mjög spennt að fljúga með viðskiptavini okkar og sérstaklega spennt að byggja upp þyrluþjónustu á Norðurlandi. Þetta er í fyrsta skipti þar sem að þyrla verður til staðar á Norðurlandi árið um kring og við höfum fengið mjög góð viðbrögð, svo sem frá ferðaþjónustuaðilum sem selja ferðir á svæðinu“ segir Jón Þór Þorleifsson framkvæmdastjóri HeliAir Iceland.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×