Innlent

Sló barns­móður sína í­trekað með öxi á bíla­stæði grunn­skóla

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Árásin átti sér stað á bílastæðinu við Dalskóla í nóvember í fyrra.
Árásin átti sér stað á bílastæðinu við Dalskóla í nóvember í fyrra. Vísir/Vilhelm

Rúmlega fimmtugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa ráðist ítrekað að fyrrverandi sambýliskonu og barnsmóður með öxi á bílastæðinu við Dalskóla í Úlfarsárdal í nóvember.

Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæruna í málinu en karlmaðurinn hefur sætt gæsluvarðhaldi síðan hann var handtekinn þann 29. nóvember.

Fram kemur í ákærunni að öxin hafi verið með tólf sentímetra löngu blaði. Hann hafi slegið konuna í höfuð, hent henni í jörðina og í framhaldinu átt í átökum við hana uns hún komst undan og leitaði skjóls inni í skólanum.

Karlmaðurinn ógnaði þannig lífi, heilsu og velferð hennar á alvarlegan og sérstaklega sársaukafullan og meiðandi hátt, að því er segir í ákæru. Konan hlaut opið sár á höfði, brot á höfuðkúpu og andlitsbeinum, sár og mat á upphandlegg auk fleiri áverka.

Þá er honum gefið að sök að hafa unnið skemmdir á bíl konunnar með öxinni. Skemmdirnar urðu það miklar að bíllinn eyðilagðist að því er fram kemur í ákærunni.

Þess er krafist að karlmaðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Til vara er þess krafist að hann sæti öryggisgæslu á viðeigandi stofnun. Þá er gerð krafa um 4,5 milljónir króna í miska- og skaðabætur fyrir konuna. Því til viðbótar tvær milljónir króna vegna tjóns á bílnum.


Tengdar fréttir

Í gæslu­varð­hald grunaður um til­raun til mann­dráps

Karlmaður sem réðst að fyrrverandi eiginkonu sinni með öxi fyrir framan Dalskóla í Úlfarsárdal í gær hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald. Árásin er rannsökuð sem tilraun til manndráps.

Réðst á konu með öxi fyrir framan grunn­skóla

Maður réðst á fyrrverandi konu sína með öxi fyrir framan Dalskóla seinni partinn í gær. Mörg vitni urðu að árásinni, þar á meðal börn. Konan var flutt á spítala, talsvert slösuð en er ekki talin í lífshættu. Lögreglan hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir manninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×