Viðskipti innlent

Annar met­sölu­mánuður Play í röð

Bjarki Sigurðsson skrifar
Birgir Jónsson er forstjóri Play.
Birgir Jónsson er forstjóri Play. Vísir/Arnar

Flugfélagið Play flutti 63.949 farþega í febrúar á þessu ári. Um er að ræða annan metsölumánuðinn í röð og segir í tilkynningu frá Play að þetta sé til marks um aukna eftirspurn og styrk sölu og leiðakerfis. 

Sætanýting Play í febrúar var 76,9 prósent. 31 prósent farþega ferðuðust frá Íslandi, 37 prósent til Íslands og 32 prósent voru tengifarþegar. Stundvísi Play var 84,3 prósent. 

Ferðir til og frá París og London nutu sérstaklega mikilla vinsælda með meira en 90 prósent sætanýtingu. Þá voru Spánarferðir einnig afar vinsælar. 

Einingatekjur Play, tekjur á hvern floginn kílómetra, eru orðnar hærri fyrir alla mánuði ársins miðað við á sama tíma í fyrra. Á sama tíma hefur framboð Play aukist um 200 prósent fyrir 2023.

Meðalfargjald fyrir árið 2023 hefur hækkað um 19% frá síðasta ári og mun hækka frekar eftir því sem nær dregur sumrinu. Meðalhliðartekjur, tekjur af öðru en flugfargjaldi, hafa hækkað um 26 prósent.

„Við erum stolt af því að að febrúar sé annar metsölumánuðurinn í röð, bókunarstaðan fyrir komandi mánuði sé sterk og tekjuvöxtur mikill. Það sama á við um eftirspurn til og frá Íslandi. Þá halda einingatekjurnar áfram að hækka, jafnvel þó að framboð hafi vaxið mikið en það er ótvíræður vitnisburður um að vörumerkið okkar hafi styrkst og til marks um góðan árangur í sölu- og markaðsmálum,“ er haft eftir Birgi Jónssyni, forstjóra Play, í tilkynningu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×