Tillagan var lögð fram miðvikudaginn 1. mars síðastliðinn eftir fund deiluaðila í húsnæði ríkissáttasemjara. Aðilar samþykktu þá að fresta öllum verkföllum og verkbönnum sem höfðu verið skipulögð dagana á undan.
Ástráður Haraldsson, settur ríkissáttasemjari í deilunni, segir í samtali við fréttastofu að hann muni ekki veita viðtöl vegna málsins heldur snúa sér strax að öðrum málum.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, segir það vera ánægjulegt að fá þessar niðurstöður og að þær hafi verið fyrirséðar. Um er að ræða sömu launahækkanir og eru í samningi annarra félaga Starfsgreinasambandsins og gildir samningurinn til 31. janúar 2024. Kauptaxtar aðalkjarasamnings hækka á bilinu 35 þúsund krónur til rúmlega 52 þúsund krónur á mánuði samkvæmt miðlunartillögunni og er meðalhækkun um 42 þúsund krónur. Hlutfallsleg hækkun kauptaxta er á bilinu 9,5 til 13 prósent og meðalhækkun rúmlega 11 prósent.
Kjaratengdir liðir, svo sem bónusar, hækka um fimm prósent nema um annað sé samið, bónusar og akkorð í fiskvinnslu hækka um átta prósent, desemberuppbót hækkar í 103 þúsund krónur, og hagvaxtarauka flýtt. Mánaðarlaun þeirra sem ekki taka laun samkvæmt kauptöxtum kjarasamnings hækka um 33 þúsund krónur. Allar hækkanir eru afturvirkar frá 1. nóvember 2022.
Þá hefur nýtt starfsheiti verið stofnað, Almennt starfsfólk gistihúsa, og þau hækkuð um launaflokk. Einnig höfðu náðst samningar hjá bílstjórum olíufélaganna og Samskipa um betri kjör og áhættuþóknun.