Klinkið

Útgildi sem afskræma umræðu um forstjóralaun

Ritstjórn Innherja skrifar
Fullyrðing um 22 prósenta hækkun meðallauna forstjóra í Kauphöllinni gefur villandi mynd af launaþróuninni. 
Fullyrðing um 22 prósenta hækkun meðallauna forstjóra í Kauphöllinni gefur villandi mynd af launaþróuninni.  VÍSIR/VILHELM

Launakjör forstjóra skráðra félaga í Kauphöllinni hafa verið í kastljósinu á undanförnum vikum. Nú þegar flest fyrirtækin hafa skilað ársuppgjöri fyrir síðasta ári er fyrirsjáanlegt að fjölmiðlar fari ofan í saumana á því hvernig forstjórunum er umbunað og ekkert athugavert við það í sjálfu sér. Það gagnast hluthöfum viðkomandi fyrirtækja, sjóðfélögum lífeyrissjóða og samfélaginu í heild sinni að stórum atvinnufyrirtækjum sé veitt aðhald í þessum efnum.






×