Tveir af hverjum fimm frá Bretlandi og Bandaríkjunum Atli Ísleifsson skrifar 10. mars 2023 07:37 Brottfarir Íslendinga voru um 39 þúsund í febrúar samkvæmt tölum Ferðamálastofu. Vísir/Vilhelm Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 137 þúsund í nýliðnum febrúar samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Um er að ræða álíka margar brottfarir og í febrúar árið 2020 og um 86 prósent af því sem þær voru í febrúar 2018 eða þegar mest var.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ferðamálastofu. Þar segir að ríflega tvær af hverjum fimm brottförum voru tilkomnar vegna Breta og Bandaríkjamanna, en brottfarir Íslendinga voru um 39 þúsund í febrúar. Fram kemur að flestar brottfarir í febrúar hafi verið tilkomnar vegna Breta eða 39 þúsund talsins (28,7 prósent af heild). Bandaríkjamenn voru í öðru sæti en brottfarir þeirra mældust tæplega 21 þúsund eða 15,1 prósent af heild. „Bretar og Bandaríkjamenn hafa verið stærstu þjóðernin í febrúarmánuði síðustu tvo áratugi eða frá því mælingar Ferðamálastofu hófust, með örfáum undantekningum. Brottfarir Þjóðverja voru í þriðja sæti í febrúar eða 6,8% af heild og Frakkar í því fjórða (6,7%). Þar á eftir fylgdu Pólverjar (4,0%), Írar (3,7%), Ítalir (3,4%), Kínverjar (2,9%), Danir (2,7%) og Spánverjar (2,2%). Brottfarir erlendra farþega frá áramótum Frá áramótum hafa um 258 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi en á sama tíma í fyrra voru brottfarir þeirra um 143 þúsund talsins. Samtals voru brottfarir í janúar og febrúar í ár um 84% af þeim brottförum sem þær mældust sömu mánuði árið 2018 og 90% af því sem þær mældust árið 2019. Brottfarir Íslendinga Brottfarir Íslendinga voru um 39 þúsund talsins í febrúar, 11 þúsund fleiri en í fyrra (39,2% aukning). Frá áramótum (jan.-feb.) hafa um 80 þúsund Íslendingar farið utan sem er álíka fjöldi og á sama tímabili 2018 og 2019,“ segir í tilkynningunni.
Ferðamennska á Íslandi Keflavíkurflugvöllur Efnahagsmál Bandaríkin Bretland Ferðalög Mest lesið Setur háa tolla á Evrópu Viðskipti erlent Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Viðskipti innlent Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Viðskipti innlent Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Viðskipti innlent Hildur ráðin forstjóri Advania Viðskipti innlent Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Viðskipti innlent Mögulega búið að hakka sig inn á Teams samskiptin þín og fleira Atvinnulíf Strákar og stálp fá styrk Viðskipti innlent Atvinnuleysi eykst Viðskipti innlent Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Strákar og stálp fá styrk Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Hildur ráðin forstjóri Advania Atvinnuleysi eykst Skipti í brúnni hjá Indó Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri „Það er gjá að myndast á leigumarkaðnum“ Viðar nýr sölustjóri Wisefish Ráðinn framkvæmdastjóri COWI á Íslandi Semja um fjögurra milljarða króna lán Þak styrkja til turnanna tveggja lækkað Efnt til nýrrar loðnuleitar í kapphlaupi við tímann Verður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Emblu Medical Gjaldþrota meðhöndlari Auðunn ráðinn viðskiptastjóri Reita Ráðin mannauðs- og gæðastjóri Hörpu „Minnstu loðnuvertíð sögunnar að ljúka“ Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Landsvirkjun greitt út níutíu milljarða á fjórum árum Halda á miðin þrátt fyrir kvóta „upp í nös á ketti“ Þurfa að taka koffíndrykk á reynslu Stjórnir Samkaupa og Heimkaupa undirrita samrunasamning Örkvóti í loðnu gæti skilað milljarði í útflutningstekjur Afkoma ársins undir væntingum Sjá meira