Lífið

Star trek stjarna segist ekki eiga mikið eftir

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Aðdáendur Star trek stjörnunnar William Shatner eru í áfalli eftir að leikarinn, sem er 91 árs, kom fram í viðtali nýlega og sagðist ekki eiga mikið eftir.
Aðdáendur Star trek stjörnunnar William Shatner eru í áfalli eftir að leikarinn, sem er 91 árs, kom fram í viðtali nýlega og sagðist ekki eiga mikið eftir. Getty

Aðdáendur Star trek stjörnunnar William Shatner eru í áfalli eftir að leikarinn, sem er 91 árs, kom fram í viðtali nýlega og sagðist ekki eiga mikið eftir. 

William Shatner á magnaðan feril að baki. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem kafteinn Kirk í Star trek, en hann er líka rithöfundur auk þess að geta státað af því að vera elsti maðurinn sem hefur farið út í geim.

William Shatner varð elsti geimfari jarðarinnar þegar hann flaug út fyrir gufuhvolfið í geimskoti Blue Origin á síðasta ári.Getty

Í nýrri heimildarmynd, You Can Call Me Bill, er farið yfir sjö áratuga feril Williams.

Í viðtali við Variety sagðist leikarinn hafa hafnað mörgum tilboðum um gerð heimildarmynda, en sú staðreynd að hann ætti ekki mikinn tíma eftir hefði fengið hann til að samþykkja gerð myndarinnar nú.

„Hvort sem ég hrekk upp af á meðan ég er að tala við þig eða eftir tíu ár, þá er tími minn takmarkaður,“ sagði Williams í viðtalinu.

William á þrjú börn og fjögur barnabörn. Hann segir heimildarmyndina meira fyrir þau en sjálfan sig, að hún væri hans leið til að ná til þeirra eftir að hann dæi.

Það sorglega er að því eldri sem manneskja verður, því vitrari verður hún, og svo deyr hún með alla vitneskjuna.

William Shatner er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem kafteinn Kirk í Star trek.Getty

William glímir ekki við nein veikindi svo vitað sé og kemur enn fram opinberlega. Árið 2016 steig hann fram og sagðist hafa greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli og að greiningin hefði breytt sín hans á lífið til muna. Skömmu síðar kom þó í ljós að greiningin var röng og ekki var um krabbamein að ræða. 

Uppfært 09:30 

William Shatner birti tíst í gærkvöldi þar sem hann sagði fréttir af yfirvofandi andláti sínu stórlega ýktar. Meiningin með orðum hans hafi aðeins verið sú að hann gerði sér grein fyrir að hann myndi ekki lifa að eilífu, þrátt fyrir að hann ætlaði sér að gera til þess heiðarlega tilraun. 

Tilgangurinn með heimildarmyndinni væri sá að afkomendur hans og komandi kynslóðir myndu fræðast betur um hann






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.