Innlent

Mikil­vægt að lög­gjöfin taki til­lit til land­fræði­legrar legu Ís­lands

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Fram kemur í ályktuninni að flugsamgöngur eru ein mikilvægasta grunnstoð byggðar á Íslandi auk þess sem efnahagslegur og samfélagslegur ávinningur af flugstarfsemi fyrir Ísland er ótvíræður.
Fram kemur í ályktuninni að flugsamgöngur eru ein mikilvægasta grunnstoð byggðar á Íslandi auk þess sem efnahagslegur og samfélagslegur ávinningur af flugstarfsemi fyrir Ísland er ótvíræður. Vísir/Vilhelm

Samkvæmt fyrirhugaðri löggjöf Evrópusambandsins sem hefur það að markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda mun aukinn kostnaður vegna kolefnislosunar leggjast þungt á flugfélög með tengimiðstöð á Íslandi, einungis vegna landfræðilegrar legu. Að óbreyttu mun þetta leiða til þess að samkeppnisstaða íslensku flugfélaganna veikist gríðarlega með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á ferðaþjónustu, flutninga, annað íslenskt atvinnulíf og samfélag í heild sinni.

Þetta kemur fram ályktun aðalfundar Samtaka ferðaþjónustunnar um flugsamgöngur og fyrirhugaða löggjöf Evrópusambandsins um losun gróðurhúsalofttegunda sem samþykkt var í dag.

Fram kemur í ályktuninni að flugsamgöngur eru ein mikilvægasta grunnstoð byggðar á Íslandi auk þess sem efnahagslegur og samfélagslegur ávinningur af flugstarfsemi fyrir Ísland er ótvíræður.

„Mikið er í húfi við að vinna að sjálfbærri framtíð flugs um og á Íslandi og hafa flugfélög sett sér metnaðarfull markmið á sviði umhverfismála meðal annars með því að taka þátt í verkefnum sem snúa að innleiðingu sjálfbærs eldsneytis og þróun á vetnis- og rafmagnsknúnum flugvélum.“

Samtök ferðaþjónustunnar benda á að boðuð löggjöf mun jafnframt ekki draga úr kolefnislosun, heldur þvert á móti stuðla að kolefnisleka, enda er í dag almennt umhverfisvænna að fljúga á minni flugvélum yfir Atlantshafið, líkt og þeim sem íslensku flugfélögin nota í sínum rekstri, með viðkomu á Íslandi frekar en að fljúga beint yfir Atlantshafið á breiðþotu.

„Það er mikilvægt að stjórnvöld verji hagsmuni Íslands þegar löggjöfin verður innleidd á Íslandi til þess að tryggja sjálfbæra framtíð og verjamikilvægan ávinning af flugi hérlendis. Samtök ferðaþjónustunnar styðja því heils hugar þá vegferð stjórnvalda að semja um að löggjöfin taki tillit til landfræðilegrar legu Íslands þannig að samkeppnishæfni íslenskra flugfélaga, Keflavíkurflugvallar sem tengimiðstöðvar og áfangastaðarins Íslands verði tryggð.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×