Lífið

Vilja fá Harry Potter á sjón­varps­skjáinn

Bjarki Sigurðsson skrifar
Rubert Grint, Daniel Radcliffe og Emma Watson, sem léku aðalhlutverkin í myndunum átta um Harry Potter, árið 2011.
Rubert Grint, Daniel Radcliffe og Emma Watson, sem léku aðalhlutverkin í myndunum átta um Harry Potter, árið 2011. Getty/Jim Spellman

Streymisveitan HBO Max og framleiðslufyrirtækið Warner Bros. skoða nú að setja í framleiðslu sjónvarpsþætti um galdrastrákinn Harry Potter og vini hans úr Hogwarts-skólanum. Talið er að gerð verði ein þáttaröð upp úr hverri bók um Potter eftir J.K. Rowling.

Bækurnar um Harry Potter eru sjö talsins og komu út á árunum 1997 til 2007. Upp úr hverri bók var gerð ein kvikmynd, fyrir utan sjöundu bókina. Hún fékk tvær kvikmyndir, Harry Potter og dauðadjásnin hluti eitt og tvö. 

Veröldin sem J.K. Rowling skapaði í kringum Harry Potter hefur heldur betur verið mjólkuð í gegnum tíðina. Gerðar hafa verið þrjár Fantastic Beasts-kvikmyndir sem gerast í sama heimi, árið 2016 var leikritið Harry Potter and the Cursed Child frumsýnt og á þessu ári kom tölvuleikurinn Hogwarts Legacy út.

Nú skoða HBO og Warner Bros. að framleiða enn meira efni um Hogwarts, nú sjónvarpsþætti. Talið er að verið sé að skoða að framleiða eina sjónvarpsþáttaröð upp úr hverri bók Rowling. Variety greinir frá þessu.

Í frétt þeirra segir að viðræður séu enn á byrjunarstigi en þetta er ekki í fyrsta sinn sem umræða um þetta fer á flug. Árið 2021 voru fluttar fréttir af áhuga HBO Max á þáttunum en lítið gerðist eftir það. 

Væntanlega verður fenginn nýr leikari til að fara með hlutverk Harry Potter í staðinn fyrir Daniel Radcliffe sem er orðinn 33 ára gamall og verður það mikil tilbreyting fyrir aðdáendur myndanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×