Lífið

Opinn fyrir því að eignast þrettánda barnið með Swift

Bjarki Sigurðsson skrifar
Nick Cannon hefur verið duglegur við að eignast börn síðustu ár.
Nick Cannon hefur verið duglegur við að eignast börn síðustu ár. Getty/Shareif Ziyadat

Barnamaskínan og sjónvarpskynnirinn Nick Cannon segist vera opinn fyrir því að eignast sitt þrettánda barn og það með söngkonunni Taylor Swift. Hann segist telja þau verða mjög gott par skildu þau byrja saman.

Um helgina var greint frá því að söngkonan Taylor Swift væri hætt með kærasta sínum til sex ára, Joe Alwyn. Hin 33 ára Swift er nú á tónleikaferðalagi, og spilar næst í Tampa í Flórídaríki í vikunni.

Nick Cannon var gestur vinsæls útvarpsþáttar Howard Stern í gær. Cannon og Stern eru ágætis félagar og störfuðu saman um tíma við gerð þáttanna America's Got Talent þar sem Cannon var um tíma kynnir og Stern dómari. 

Stern spurði Cannon hvað hann myndi gera ef Swift væri tilbúin í að eignast barn með honum, barneignir Cannon hafa vakið athygli síðustu ár enda á hann tólf börn með sex konum. Cannon sagðist vera mjög til í það.

„Í fyrsta lagi er hún frábær lagasmiður. Það sem ég elska við Taylor Swift er hversu berskjölduð oh opin hún hefur verið í allri tónlist sinni,“ sagði Cannon. „Ég held hún myndi tengja mjög vel við mig.“ Sagði hann hugmyndina um að eignast barn með Swift vera frábæra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×