Sport

Kári Jónsson: Var búinn að vera lélegur framan af leik

Andri Már Eggertsson skrifar
Kári Jónsson gerði 26 stig í kvöld
Kári Jónsson gerði 26 stig í kvöld Vísir/Hulda Margrét

Valur vann Stjörnuna 96-89. Valur er því einum sigri frá því að komast í undanúrslitin. Kári Jónsson, leikmaður Vals, fór á kostum í fjórða leikhluta og gerði sautján stig á fimm mínútum. 

„Mér fannst þetta svipaður leikur og fyrsti leikurinn í einvíginu. Orkan hjá okkur var mögulega aðeins betri. Undir lokin settum við nokkur skot ofan í og unnum en seinast gerðu þeir það,“ sagði Kári Jónsson eftir leik.

Valur var þremur stigum yfir í hálfleik og Kári var nokkuð sáttur með jafnvægið í leiknum.

„Mér fannst við byrja ágætlega og það var góður taktur í okkur í byrjun en síðan misstum við taktinn. Við grófum okkur ofan í holu þegar Kristófer [Acox] fór út af meiddur en sem betur fer sýndum við mikinn karakter og við náðum að kreista fram sigur undir lokin.“

Valur var tíu stigum undir þegar fimm mínútur voru eftir. Kári Jónsson tók þá leikinn í sínar hendur og gerði 17 stig á síðustu fimm mínútunum.

„Ég fór að sækja meira á körfuna. Ég var búinn að vera hræðilega lélegur allan leikinn en við fórum að keyra upp hraðann og ég fékk nokkrar auðveldar körfur og ég þurfti líklega bara að sjá boltann fara ofan í og þá fóru skotin að detta sem var kærkomið.“

„Stjarnan spilaði góða vörn á mig og ég var ekki nógu grimmur og var stuttur í skotunum eins og gengur og gerist. Við héldum áfram og sem betur fer fundum við leiðir til að koma til baka og vinna leikinn.“

Valur er einum sigri frá því að komast í undanúrslitin en Kári átti von á jöfnum leik þar sem Stjarnan á eftir að leggja allt í sölurnar.

„Næsti leikur verður sennilega svipaður og þessi leikur. Við þurfum að taka stöðuna á Kristófer [Acox] en aðrir þurfa að gera meira. Stjarnan er að fara berjast fyrir lífi sínu í næsta leik og við þurfum að mæta þeirri orku,“ sagði Kári Jónsson að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×