Innherji

Alfa Fram­tak hleypir nýrri inn­viða­sam­stæðu af stokkunum

Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar
Jarðvegsvinna

Framtakssjóðastýringin Alfa Framtak hefur stofnað nýtt félag, INVIT, sem hefur það hlutverk að sameina íslensk innviðafyrirtæki undir einum hatti.

„Með þessu er stefnt að því að festa í sessi þá þekkingu sem skapast hefur í stórframkvæmdum hér á landi og jafnframt að gera innviðafjárfestingar á Íslandi að öruggari valkosti fyrir fjárfesta,“ segir í tilkynningu frá Alfa Framtaki. 

Grafa og grjót, sem sérhæfir sig í jarðvegsframkvæmdum og þjónustu við innviðauppbyggingu, verður lykilstoð í nýju samstæðunni en framtakssjóður á vegum Alfa Framtaks fer með um 60 prósenta hlut í fyrirtækinu.

Hjá samstæðunni starfa nú 87 manns, annars vegar hjá Gröfu og Grjóti, og hins vegar hjá dótturfélaginu Steingarði. Framundan er frekari stækkun INVIT með það fyrir augum að fanga stærri hluta virðiskeðjunnar þ.e. að sinna verkefnum á sviði jarðvinnu, vegagerðar og stórframkvæmda um land allt. Dótturfélög samstæðunnar munu hins vegar áfram starfa sjálfstætt undir eigin vörumerkjum.

Árni Jón Pálsson, stjórnarformaður INVIT og fjárfestingastjóri hjá Alfa Framtak.

„Frá 2021 höfum við fjárfest í Gröfu & Grjót og Steingarði. Við hyggjumst bæta öðrum félögum við samstæðuna og þannig mynda eina sterka heild. Með því að fá bestu aðilanna undir eitt öflugt móðurfélag, náum við að leggja leiðina fyrir íslenska innviði, öruggar fjárfestingar og sjálfbærari framtíð,“ segir Árni Jón Pálsson, stjórnarformaður INVIT og fjárfestingastjóri hjá Alfa Framtak.

Guðgeir Freyr Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Gröfu og Grjóts, segir að stofnun samstæðunnar sé til þess fallin að efla íslenska innviði til framtíðar. 

„Næstu árin mun bæði þurfa að ráðast í stórar framkvæmdir og sinna viðhaldi á íslenskum innviðum, en til þess að sinna þessum verkefnum með áreiðanlegum hætti þarf öfluga heild með sérhæfðri þekkingu, sem getur staðið af sér mismunandi aðstæður í efnahagslífinu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×