„Þau eru furðu keik miðað við aðstæður en við þurfum að passa okkur á því hvernig við ræðum þetta mál,“ segir Kristófer í samtali við Vísi um líðan fjölskyldu hins látna. Hann skipulagði síðustu helgi fjölmenna minningarstund í Landakotskirkju til stuðnings fjölskyldunnar.
Fjögur ungmenni voru upphaflega hneppt í gæsluvarðhald vegna málsins en samkvæmt heimildum fréttastofu hefur einn þeirra játað sök.
Einum fjórmenninganna, sautján ára stúlku hefur verið sleppt úr haldi eftir úrskurð Landsréttar. Tveir voru vistaðir á Stuðlum en einn sakborninga er á Hólmsheiði.
Barnsmóðir og barn hins látna eru búsett í Póllandi. Móðir hans býr hér á landi.
„Þegar manneskja þekkir ekki tungumálið og kemur hingað til lands og upplifir allt í einu svona hörmungar, þá er auðvitað sár í hjarta og mér finnst að við þurfum svolítið að passa okkur hvernig við tölum um þetta, eins og á samfélagsmiðlum.“
Kristófer hvetur alla til þess að líta í eigin barm og kallar eftir umræðu um aukið ofbeldi hér á landi.
„Við viljum segja nei við ofbeldi. Ísland er eitt land, sem við þurfum öll að passa upp á. Ekki bara Pólverjar, heldur við öll saman, við öll sem búum hér og störfum hér.“
Kristófer hvetur öll sem vettlingi geta valdið til þess að styðja fjölskyldu hins látna. „Og einbeita sér að því sem máli skiptir.“
Styrktarreikningur fjölskyldunnar:
Kt. 211020-2530
Bankareikningur. 0331-18-001396