Innlent

Rebekka Rún er tuttugu þúsundasti Akur­eyringurinn

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Foreldrarnir Þórey Erla Erlingsdóttir og Alexander Ottó Þrastarson ásamt Rebekku Rún litlu.
Foreldrarnir Þórey Erla Erlingsdóttir og Alexander Ottó Þrastarson ásamt Rebekku Rún litlu. Akureyri

Akureyringar eru orðnir tuttugu þúsund eftir að stúlka kom í heiminn síðastliðinn föstudag. Foreldranir fengu heimsókn frá bæjarstjóra Akureyrar, blóm og gjafir en segja „bestu verðlaunin“ vera stúlkuna sjálfa sem mun hljóta nafnið Rebekka Rún.

Stúlkan sem er fyrsta barn þeirra Þóreyjar Erlu Erlingsdóttur og Alexanders Ottós Þrastarsonar var þrettán merkur þegar hún fæddist rétt fyrir átta á föstudagsmorgun. Að sögn foreldranna gekk fæðingin vel og hefur lífið eftir fæðinguna gengið „eins og í sögu“.

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, ásamt foreldrunum og tuttugu þúsundasta Akureyringnum.Akureyri

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, heimsótti nýbökuðu foreldrana, færði þeim blómvönd, gjafir og óskaði þeim til hamingju með áfangann. Meðal gjafanna var samfella, Lýðheilsukort og silfurskjöldur áletraður með nafni barnsins, fæðingardegi og hamingjuóskum frá Akureyrarbæ.

Foreldrarnir sjálfir höfðu ekki gert sér grein fyrir áfanganum fyrr en þau fengu óvænt símtal frá bænum. 

Í samtali við Akureyri.net sögðu þau það hafa verið „smá sjokk“ þegar þau fengu hringinguna og það hefði verið gaman að fá verðlaun þó stúlka væri „að sjálfsögðu bestu verðlaunin“.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×