Aðför að safnageiranum Hilmar J. Malmquist. skrifar 27. apríl 2023 08:30 Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), birti grein í Vísi 24. mars s.l. þar sem hann svarar grein minni í Vísi 22. mars s.l. um kvörtun SAF og Perlu Norðursins hf. (PN) til Samkeppniseftirlitsins vegna fyrirhugaðs sýningahalds Náttúrminjasafns Íslands í nýjum höfuðstöðvum safnsins á Seltjarnarnesi. Í ljósi nýjustu vendinga í skyldu máli, þ.e. ákvörðunar bæjarstjórnar Kópavogs að leggja niður rannsóknastarfsemi og sýningahald Náttúrufræðistofu Kópavogs á grundvelli svipaðra „raka“ og SAF færir fyrir sínu máli gegn Náttúruminjasafninu er full ástæða til að svara framkvæmdastjóra SAF. Aðför SAF og PN er hvorki bundin við Náttúrumninjasafnið né eru SAF og PN ein um aðförina að safnageiranum. Allur safnageirinn undir Jóhannes kveinkar sér undan grein minni, kallar hana „stríðsyfirlýsingu“ og neitar því … „að í erindi SAF felist almenn aðför að safnastarfsemi.“og segir að málið snúist ekki um „minja og náttúrusöfn almennt“ heldur einvörðungu fyrirhugaða starfsemi Náttúruminjasafnsins á Seltjarnarnesi. Ástæðuna segir hann vera „að ýmislegt varðandi þessa tilteknu sýningu Náttúruminjasafns afmarkar málið við hana“. Útskýringar Jóhannesar eru þær að það „tengjast t.d. ekki allar minjasýningar á landinu sambærilegri sýningu í Perlunni beint“ (leturbr. mín) líkt og SAF telur að fyrirhugað sýningahald Náttúruminjasafnsins á Seltjarnarnesi muni gera, sem og að „það eru heldur ekki allar minjasýningar byggðar á fýsileikakönnun sem tiltekur sérstaklega að sýning þeirra verði „sambærileg“ við sýninguna í Perlunni.“. Við þennan málflutning framkvæmdastjóra SAF er ýmislegt að athuga. Í fyrsta lagi er Jóhannes í mótsögn við sjálfan sig um það hvort kvörtunin beinist aðeins að Náttúruminjasafninu eða safnastarfsemi í landinu almennt. Jóhannes segir sjálfur að SAF vilji líka „fá svar þar til bærra yfirvalda“ um „hugsanlega önnur sambærileg tilfelli“. Í öðru lagi stendur í kvörtuninni „Þá er skorað á Samkeppniseftirlitið að taka til sjálfstæðrar athugunar þau söfn og sýningar sem rekin eru af opinberum aðilum og fyrirtækjum í eigu ríkisins, til dæmis Orkusýningu Landsvirkjunar í Ljósafossstöð.“. Ennfremur er í niðurlagi kvörtunarinnar „skorað á Samkeppniseftirlitið að taka jafnframt til sjálfstæðrar skoðunar þau söfn og þær sýningar sem reknar eru af opinberum aðilum og eru í beinni samkeppni við einkaaðila.“ Dæmi nú hver fyrir sig um hverjir séu undir í kvörtun SAF og PN. Málflutningur Jóhannesar þess efnis að kvörtunin afmarkist við Náttúruminjasafnið vegna þess að fyrirhuguð sýning safnsins á Seltjarnarnesi verði „sambærileg“ við sýningu PN í Perlunni, sem Jóhannes segir að sé tekið sérstaklega fram í svokallaðri fýsileikakönnun, sem á sér enga stoð og er hreinn uppspuni, er í senn furðuleg og hjákátleg og stenst ekki skoðun. Náttúruminjasafnið hefur um 500 m2 til umráða undir sýningaratriði í nýjum höfuðstöðvum sínum á Seltjarnarnesi, Náttúruhúsi í Nesi, og meginþema sýningarinnar verður hafið, líffræðilegur fjölbreytileiki sjávar, vistfræði, myndun og mótun Atlantshafs og Íslands og náttúruvár á borð við loftslagsbreytingar og áhrif á vistkerfi sjávar. Hafinu er vissulega gerð skil á sýningu PN í Perlunni en sú umfjöllun er með allt öðrum hætti og margfalt minni að sniðum en verður í Náttúruhúsi í Nesi. Þegar upp er staðið verða sýningar PN og Náttúruminjasafnsins um hafið ósambærilegar að flestu ef ekki öllu leyti m.t.t. hugmyndafræði, efnistaka og framsetningar. Kópavogsbær, KPMG og náttúran Skýrsla KPMG sem liggur til grundvallar ákvörðun Kópavogsbæjar um að leggja niður Náttúrufræðistofu Kópavogs er sama marki brennd og málflutningur SAF og PN. Þar á bæ sjá menn ekki „fjárhagslegan ávæning“ af því að stofan, sem skv. safnalögum er skilgreind sem „viðurkennt safn“ og nýtur m.a. ríkisstyrkja, skuli sinna rannsóknum! Því er einnig haldið fram, án nokkurra raka, að rannsóknastarfsemin sé „í samkeppni við aðra“. Skilningsskortur og fégræðgi Ljóst má vera, þótt framkvæmdastjóri SAF reyni að halda öðru fram, að SAF og PN hófu með kvörtun sinni vegferð sem beinist að hinum opinbera safnageira almennt og Náttúruminjasafni Íslands sérstaklega. Aðför SAF rímar og við þau orð framkvæmdastjórans að það sé „afstaða samtakanna að rekstur opinberra aðila í samkeppni við einkaaðila sé óæskilegur.“ Það er leitt til þess að vita að SAF skuli skilgreina starfsemi höfuðsafns þjóðarinnar í náttúrufræðum og annarra opinberra safna og sýninga með jafn þröngsýnum og skilningsvana hætti. Hið sama gildir um bæjarstjórn Kópavogs og KPMG í tilviki Náttúrufræðistofu Kópavogs. Starfsemi þessara stofnana snýst um lögboðin, óhagnaðardrifin hlutverk á sviði rannsókna, skráningar, varðveislu og miðlunar til almennings og gesta landsins, sem einkaaðilar á borð PN lúta ekki. Ólíkt Náttúruminjasafninu gæti PN t.d. lokað sýningu sinni í Perlunni á morgun vafningalaust ef skyldi harðna svo á dalnum að arður til eigenda þætti of lítill. Saga húsnæðismála Náttúruminjasafnsins er löng, ríflega 135 ára, og þyrnum stráð en nú hefur loks verið fundin lausn með flutningi í Náttúruhús í Nesi, glæsilega byggingu á einkar fögrum stað á Seltjarnarnesi. Með kvörtun SAF og PN hefur hins vegar dregið ský fyrir sólu, því fjárhagslegur aðskilnaður á rekstri sýningar frá öðrum rekstri Náttúruminjasafnsins myndi kippa fótunum undan grundvallarhlutverki safnsins, sem er að miðla fróðleik, upplýsingum og þekkingu um náttúru Íslands til almennings og gesta landsins með sýningahaldi. Að lokum Skyldi svo fara eins og SAF stefnir að með kvörtun sinni til Samkeppniseftirlitsins gagnvart Náttúruminjasafninu og fleiri söfnum, liggur beinast við að leggja höfuðsafn þjóðarinnar í náttúrufræðum niður, líkt og Kópavogsbær hefur gert með Náttúrufræðistofu Kópavogs. Það væri til vitnis um mikla skammsýni, skilningsskort, fégræðgi og harðlínustefnu í anda nýfrjálshyggju gagnvart opinberum umsvifum, náttúrufræðslu og náttúrvernd. Ég trúi ekki öðru en að Náttúruminjasafn Íslands eigi sér bjartari framtíð meðal þjóðarinnar en slík örlög. Höfundur er forstöðumaður Náttúruminjasafn Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Söfn Mest lesið Gerræðisleg og hjartalaus leyfisveiting, sem stöðva verður! Ole Anton Bieltvedt Skoðun Hugleiðingar leikskólakennara í verkfalli Elín Gíslína Steindórsdóttir Skoðun Kæra vinkona Margrét Pála María Ösp Ómarsdóttir,Tinna Björg Kristinsdóttir Skoðun Ráðningarvernd samrýmist grunnstoðum lýðræðisins Kolbrún Halldórsdóttir Skoðun Reykjalundur í 80 ár Pétur Magnússon Skoðun Opið bréf til þingmanna frá húsmóður í Vesturbænum Margrét Kristín Blöndal Skoðun Menntun í gíslingu hrímþursa Þorsteinn Gunnarsson Skoðun Dýrkeypt skiptimynt! María Védís Ólafsdóttir Skoðun Opið bréf til kennara og stjórnenda allra framhaldsskóla Klara Nótt Egilson Skoðun Styðjum Áslaugu Örnu – sameinumst um grunngildin Hópur Sjálfstæðismanna Skoðun Skoðun Skoðun Dýrkeypt skiptimynt! María Védís Ólafsdóttir skrifar Skoðun Reykjalundur í 80 ár Pétur Magnússon skrifar Skoðun Ráðningarvernd samrýmist grunnstoðum lýðræðisins Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Gerræðisleg og hjartalaus leyfisveiting, sem stöðva verður! Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Hugleiðingar leikskólakennara í verkfalli Elín Gíslína Steindórsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til þingmanna frá húsmóður í Vesturbænum Margrét Kristín Blöndal skrifar Skoðun Opið bréf til kennara og stjórnenda allra framhaldsskóla Klara Nótt Egilson skrifar Skoðun Kæra vinkona Margrét Pála María Ösp Ómarsdóttir,Tinna Björg Kristinsdóttir skrifar Skoðun Sjúkraflug í vondri stöðu - hvenær verður brugðist við? Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Fangelsi Framsóknarflokksins Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Menntun í gíslingu hrímþursa Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Viltu vinna með framtíðinni? Helga Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Færum fanga úr fortíðinni Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Getur hver sem er sinnt besta starfi í heimi? Sveinlaug Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hugleiðing um listamannalaun IV Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Styðjum Áslaugu Örnu – sameinumst um grunngildin Hópur Sjálfstæðismanna skrifar Skoðun Sjálfbærni íslenskra fyrirtækja er ekki lengur valkostur Ísabella Ósk Másdóttir,Guðni Þór Þórsson,Arent Orri J. Claessen skrifar Skoðun Minnihlutavernd í fjöleignarhúsum Sigurður Orri Hafþórsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf aðhald Svandís Svavarsdóttir skrifar Skoðun Undir faglegri leiðsögn kennara blómstra börn Jónína Hauksdóttir skrifar Skoðun Donald Trump og tollarnir Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Rauð viðvörun í íslenska menntakerfinu Tinna Steindórsdóttir skrifar Skoðun Varasjóður VR Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til Alþingis, við þingsetningu 4. febrúar Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer,Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Leigubílar eiga að vera almenningssamgöngur en ekki neyðarúrræði Eyþór Máni Steinarsson skrifar Skoðun Hættan sem felst í því þegar stjórnmálamenn vilja endurskoða fjölmiðlastyrki vegna gagnrýnnar umfjöllunar Ólafur Hand skrifar Skoðun 460 milljóna króna ofrukkun á viku Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Kennarar hafa yfirvinnu af öðrum kennurum Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar Skoðun Byrlunar- og símamálið: þáttur blaðamanna féll á fyrningu Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Allar konur eru konur. Punktur. Auður Önnu Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfbærni íslenskra fyrirtækja er ekki lengur valkostur Ísabella Ósk Másdóttir,Guðni Þór Þórsson,Arent Orri J. Claessen skrifar
Skoðun Opið bréf til Alþingis, við þingsetningu 4. febrúar Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer,Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar
Skoðun Leigubílar eiga að vera almenningssamgöngur en ekki neyðarúrræði Eyþór Máni Steinarsson skrifar
Skoðun Hættan sem felst í því þegar stjórnmálamenn vilja endurskoða fjölmiðlastyrki vegna gagnrýnnar umfjöllunar Ólafur Hand skrifar