Lífið

Rihanna fetar í fótspor Ladda

Bjarki Sigurðsson skrifar
Rihanna og Laddi munu brátt eiga eitt sameiginlegt, og það er að hafa talsett fyrir Strympu.
Rihanna og Laddi munu brátt eiga eitt sameiginlegt, og það er að hafa talsett fyrir Strympu. Getty/Vísir

Barbadoska söngkonan Rihanna mun talsetja fyrir Strympu í nýrri mynd Paramount um Strumpana frá Strumpalandi. Hún fetar þar með í fótspor Katy Perry, Demi Lovato og Ladda sem talaði fyrir alla Strumpana í sjónvarpsþáttum um litlu bláu verurnar.

Söngkonan greindi sjálf frá þessu á CinemaCon í Las Vegas í dag. Hún grínaðist með að hafa reynt að fá að talsetja fyrir Æðsta strump en endað á að fá Strympu. 

Rihanna mun einnig semja og syngja inn á lög fyrir myndina sem stefnt er á að komi út í febrúar árið 2025. Verður myndin leikin og teiknimynd í bland, svipað tveimur kvikmyndum um Strumpana sem komu út árið 2011 og 2013. Í þeim myndum var það Katy Perry sem talaði fyrir Strympu en árið 2017 kom út þriðja myndin sem var bara teiknimynd. Þar talaði Demi Lovato fyrir Strympu.

Katy Perry á frumsýningu Strumpanna 2 árið 2013.Getty/Barry King





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.