Jóhannes Rúnar Jóhannsson, dómsformaður í málinu, úrskurðaði um vanhæfið í gær. Hafnaði hann kröfu Björgólfs um að Jón Arnar taki ekki sæti í dóminum sem sérfróður meðdómsmaður í málinu sem lýtur að upplýsingagjöf Björgólfs til hluthafa Landsbankans og yfirtökuskyldu á árunum fyrir bankahrun.
Reimar Pétursson, lögmaður Björgólfs, setti kröfuna fram vegna þess að Jón Arnar, sem er endurskoðandi, hafði aðkomu að málsvörn endurskoðunarfyrirtækisins Price Waterhouse Coopers (PwC) í lögsókn slitabús Landsbankans. Sagði Reimar að Jón Arnar hefði veitt PwC ólögskyldar leiðbeiningar vegna atriða sem varði sakarefni hópmálsóknarinnar. Óheppilegt væri ef það kæmi upp í aðalmeðferð málsins.
Einnig að Jón Arnar hefði verið yfirmaður eftirlits með beitingu IFRS reikningsskilastaðla hjá ársreikningaskrá.
Enga hagsmuni af niðurstöðunni
„Í málinu er sem fyrr segir byggt á því af hálfu stefnanda að stefndi hafi veitt rangar og ófullnægjandi upplýsingar um óbeina hlutafjáreign sína í Landsbankanum og þannig villt um fyrir bæði stjórnendum og endurskoðendum bankans, með þeim afleiðingum að ársreikningur bankans og árhlutauppgjör hafi verið röng,“ segir í úrskurðinum sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjavíkur. „Sakarefni málsins lýtur samkvæmt því að meintri saknæmri og ólögmætri háttsemi stefnda, en ekki að háttsemi endurskoðenda bankans eða stjórnenda hans og enn síður að framkvæmd ársreikningaskrár. Enginn þessara aðila er enda málsaðili í málinu.“
Þá er einnig bent á að hvorki Jón Arnar né starfsmenn á hans vegum hafi komið að eftirliti með reikningsskilum Landsbankans á umræddum tíma, það er árunum 2005 til 2007. „Hann hefur sömuleiðis enga hagsmuni af niðurstöðu málsins,“ segir í úrskurðinum.
Tafði aðalmeðferð
Vanhæfismálið var sérmál innan hópmálsóknarinnar sem hófst árið 2015 en á rætur sínar til vitnamála Vilhjálms Bjarnasonar árið 2012. Aðalmeðferð átti að hefjast í þessum mánuði en tefst vegna þess.

Þrjú hundruð hluthafar Landsbankans fallna krefjast viðurkenningar á bótaskyldu Björgólfs. Það er Málsóknarfélög hluthafa Landsbankans númer I, II og III. Þá krefjast tvö félög, Fiskveiðihlutafélagið Venus og Hvalur undir forystu útgerðarmannsins Kristjáns Loftssonar, 600 milljóna króna í bætur.